- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
294

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

29 302

út skip í þessum tilgangi, en útgjörðin gekk mjög seint og
lítið útlit var til þess, að farmur fengist; það varð þvi ekki af
neinni mælingaferð á þvi sumri, og var þó búið að kosta
all-miklu fé til ferðarinnar. og siðar varð heldur ekki af, að
Born væri sendur og er hann úr sögunni.1 Þó er þess getið,
að nokkrir sjóforingjar ferðuðust til Islands sumarið 1820 á
eigin kostnað. munu þeir hafa ætlaö að undirbúa þetta mál
og söfnuðu skýrslum um strendur Norðurlands; þeir hétu
Graah, Holstein. Scholten og Ratsack,2 ekki er þess þó getið,
að þeir hafi mælt neitt.. Sumarið 1821 var W. A. Graah
sendur til Austfjarða, átti hann einkum að stika dýpi á
Beru-firði og rannsaka eyjabálkinn þar suður af, því mælingar
Aschlund’s reyndust mjög ónákvæmar á þvi svæði.3 Graah
kom til Vopnafjarðar 20. apríl og var þá íslaust við
Austur-land. en síðar voru hafisar mjög til hindrunar: ísinn kom fyrir
Langanes i júnímánuði, komst suður að Austur-Horni og fyllti
flesta firði: mestallt sumarið var hafisinn að hrekjast fyrir
Austfjörðum unz hann rak burt í norðanstormi 20. ágúst, rak
suður á bóginn og sást frá Vestmanneyjum. Seinna sást hafis
norðan til við Austfirði, en kom eigi að iandi og hvarf fljótt
aptur. Þrátt fyrir ýmsa örðugleika, sem stöfuðu af is og
þokum. gat Graah þó framkvæmt verk sitt, hann lét smíöa
sterka skútu- og mældi af henni, og var Lövenörn mjög vel
ánægður með árangurinn.4 Eptir það datt sjómælingamál
þetta aiveg niður, þó þarft væri, stjórnin mun hafa séð í
kostnaðinn,5 Lövenörn varð því að bjargast við það, sem fyrir
hendi var.

’) Lovsamling for Island VIII. bls. 26—27. 49—50.

2) F. A. L. Thienemann: Reise nach Island. Leipzig 1827, bls. 23,
117, 296.

") Lovsamling for Island VIII. bls. 21S-220. 222—225.

4) F. Lövenörn: Beskrivelse over den islandske Kyst IV. 1822. bls.
1—2. Wilhelm August Graah (1793—1863) varð seinna frægur fyrir
rann-sóknir sínar á Grænlandi, einkum fyrir ferðina 1828—1831 til þess að
leita að Austurbyggð.

s) Ferð Graah’s til íslands 1821 kostaði 2501 rd. 44 sk. (Lovs. f.
Island IX. bls. 159).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0302.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free