- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
312

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

312

garðinn að Stapa, svo inn með fjöllum að sunnanverðu, siðan
beina leið suður aó Sviðholti og kom þangað 27. september.

Sumariö 1838 fór Björn Gunnlaugsson austur í Múlasýslu
og mældi norðurhiuta hennar: á leiðinni austur fór hann langa
fjallaferð um öræfi og óbyggðir þvers vfir Ódáöahraun og var
það örðug ferð og hættuleg. Fjallvegafélagið var þá i blóma
sínum; það lét ryðja heiðavegi og lét sér mjög annt um að
finna sem styzta fjallvegi milli fjórðunga. félagið hafði þá fyrir
skömmu sent Pétur Pétursson frá Hákonarstööum til þess að
finna hinn forna veg yfir Ódáðahraun.1 Nú vildi Björn
Gunnlaugsson kynna sér þessi öræfi og sérstaklega var
hon-um áhugamál að finna stuttan veg yfir hálendiö fvrir norðan
Vatnajökul. Björn lagði á stað heiman frá sér 23. júli, fór
fyrst austur í Olfus og þá um Flóa og Hreppa; hinn 26. júlí
lagði hann á fjöll frá Stóranúpi og tjaldaði um kvöldið fyrir
ofan Skriðufell; með honum var þá Jón Austmann, er siðar
varð prestur í Stöð; hinn 27. júlí komust þeir upp að
Búðar-hálsi og hinn 28. i Arnarfellsver, hinn 29. fóru þeir undir
Arnarfell, 30. fyrir horn á Vatnajökli og 31. undir
Trölla-dyngju; i Ódáðahrauni hrepptu þeir mestu dimmviðri, gat
Björn því ekkert mælt að neinu ráði, villtust þeir inn i
Dyngjufjöll og klöngruðust við illan leik 1. ágúst austur úr
Öskju; vildi þaö þeim tii bjargar, að þeir hittu þar grastór
fram með lækjum, er falla úr suðausturhorni fjallanna, annars
mundu hestarnir iiklega hafa drepist; nú eru hagatór þessar
eyddar af gosinu 1875. Hinn 2. ágúst komust þeir niður að
Jökulsá viö Herðubreið, fóru þaðan suður meó ánni í Hvanna-

r

lindir og komust með illan leik að Brú 4. ágúst. A Brú
hvíldi Björn sig einn dag og fór svo stuttar dagleiðir út
Jökul-dal, siðan reið hann um Úthérað og mældi það, fór svo suóur
að Reyðarfirði, en hvarf þaðan aftur 21. ágúst upp að
Valla-nesi og mældi efri hluta Fljótsdaishéraðs hina næstu viku.
Hinn 30. ágúst fór Björn Gunniaugsson noröur yfir
Smjör-vatnsheiði að Hofi i Vopnafirði, svo að Hauksstöðum og yfir
Dimmafjallgarð að Grimsstöðum, þaðan að Reykjahlíð og

’) Þ. Th.: Odáðahraun (Andvari XI. bls. 25—26).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0320.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free