- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
320

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

320

sjónir.1 Allar hæöamælingar þær, sem prentaðar eru á
Upp-drætti íslands. eru eptir strandmælendurna. engin eptir
Björn.

Þar sem Björn Gunnlaugsson fór yfir og mældi, eru
uppdrættir hans furöulega góðir, geróir með hinni mestu
vandvirkni og svo nákvæmlega sem framast var unnt eptir
kringumstæöunum. Að Björn gat svo miklu til leiðar komið
var fyrst og fremst að þakka dugnaði hans og samvizkusemi.
og svo því, að hann þurfti ekki að tefja sig á neinu öðru,
hann íékkst eingöngu við mælingar, en átti ekkert við jarðfræði
eða náttúrufræði og ritaði heldur ekki neinar dagbækur eða
landslagslýsingar. Þegar Björn Gunnlaugsson ekki mældi. var
hann optast að yrkja >Njólu«. eptir því sem einn af
fylgdarmönn-um hans hefir sagt mér. og vissi þá ekki af neinu, sem gerðist
i kringum hann. Vér höfum hér að framan nokkuð itarlega
sagt frá ferðum Björns Gunnlaugssonar sökum þess að af því
má nokkurnveginn sjá, hvar hann hefir farið yfir og mælt,
og hvar hann hefir ekki komið. Samkvæmt þvi. sem Birni
var fyrirskipað af Bókmenntafélaginu, mældi hann bezt byggðir
og sveitir. en lét hálendið, óbyggðir og öræfi mæta afgangi;
þetta var eðlilegt og rétt, þvi byggðirnar þurfti helzt að mæla:
þó er hálendisuppdrátturinn að öllu samtöldu furðu góður,
þó honum eðlilega sé í mörgu ábótavant, þar sem Björn varð
að fara eptir sögusögn annara manna, sem ekki voru
mæl-ingarfróðir. Um óbyggðir fór Björn ekki viða, en þó miklu
viðar en nokkur fræðimaður annar á undan honum, og
feng-ust af uppdrætti hans stórmiklar nýjar upplýsingar um
há-lendið. Öræfaferðir Björns voru margar mjög örðugar og
þurfti góða heilsu og mikið þrek til þess að þola slika árevnslu
fyrir roskinn mann, sérstaklega þar sem útbúningur allur
hlýtur að hafa verið mjög fátæklegur, þvi varla var fé fyrir
hendi til hins allra nauðsynlegasta á ferðum i byggð, hvað þá

’) Eg heíi látið prenta nokkrar af hæðamælingum Björns
Gunn-laugssonar í Geografisk Tidskrift III, 1879. bls. 126-127, og í
Alma-naki Þjóðvinafélagsins 1881, bls. 49—50. í bréfi til 0. N. Olsens (16.
jútí 1840) kvartar Björn undan því, að upphyllingar og tíbrá á öræfum
gjöri opt glundroða í hæðamælingunum.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0328.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free