- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / IV. /
115

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

115

t

Aragon1 um strendur Islands og fiskiveiðar og ýmislegt, er
fyrir augun bar. á strandferðum með frönsku herskipi. Sama
ár gaf Lord Garvagh út bók um Island2. Bækur þessar eru
einsog svo margar aðrar ómerkilegar, að mestu levti daglegt
hjal og frásögur um lítiifjörlega atburði, sem enga þýðingu

r

hafa fyrir aðra en ferðamanninn sjálfan. Arin 1875 og 1876
ferðaðist Ch. G. Warnford Lock3 allvíða um land og dvaldi
lengst í Þingeyjarsýslu við brennisteinsnárnurnar, sem hann
var viðriðinn. Lock kvnntist Islandi töluvert og ritaði stóra
bók um ferðir sinar; hann ritar flest íslenzk nöfn rétt, en
það er líka því nær hió eina, sem er að gagni r bókinni;
höf. er mjög lastmáll bæði um landið og einstaka menn.
Sumarið 1878 kom skozkur auðmaður (John Burns) til
Reykja-vikur á lvstiskipi einsog opt vill verða. og voru með honum
margir tignir gestir; hinn alkunni enski rithötundur Anthony
Trollope skrifaði um ferðina4 og líka iþróttakonan H.
Black-burn5, er teiknaði góðar myndir af því er hún sá. Pá má
að lokum geta um bók, er kom út 1880 eptir Miss C. A. De
Fonblanque, sem er varla annað en þýóingarlaus þvættingur6.

’) George Aragon: Les cotes dTIslande et la péche de la morue
(Revue des deux mondes. October 1875. bls. 744—779).

2) Lord Garvagh: The pilgrim of Scandinavia. London 1875, 8°.
Um Island bls. 1 —116. Lord Garvagh segir, að einn af forfeðrum
sín-um. William Canning frá Bristol. hafi haft verzlunarleyfi á íslandi. af
því Danastjórn skuldaði honum mikið fé. í kirkjunni St. Mary de
Redcliffe sézt enn legsteinn hans, á honum eru talin skip hans og þess
getið að eitt þeirra sé >in Iselond« (bls. 90—91).

3) Charles G. Warnford Lock: The Home of the Edda’s. With a
chapter on the Spiengisandr by Dr C. Le Neve Forster. London
1879. 8° (XII + 848 bls.). Geograíisk Tidskrift 1880. bls. 61-62. Á
þessum árum komu út tvö rit um Island. sem eg hefi ekki séð:
*Da-vid Ker: lnto the far north; or a glance at Hecla and the geysers
(All the world over. New York and London. 1877. I. bls. 21—28,
101-116. 186 -192. 285—292) og *N. L. Van Guisen: A Holiday in
Iceland. London 1879.

4) Anthony Trollope: How the >Mastiffs» went to Iceland. With
illustrations by Mrs Hugh Blackburn. London 1878, 4° (46 bls.).

5) Hugh Blackburn: To Iceland (Good Words. London 1879, bls.
480-486. 559-565, 622-628).

6) C. A De Fonblanque: Five weeks in Iceland. London 1880. S°
(180 bls ). 8*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:46 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/4/0127.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free