Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
12 2
og hita sævarins og samdi margar ritgjörðir um athuganir
sinar og annara. Irminger kom í fvrsta sinn til Islands með
nokkrum öðrum herforingjum skemmtiferð 1826 og síðar opt
á herskipum, meðal annars 1834 með Friðriki VII. Um
strauma við Island ritaði hann þó eigi fyrr en 1843, en svo
kom hver ritgjörð af annari eptir það. J. C. Schythe reit 1843
greinarstúf um hita á yfirborði sævar í Atlantshafi1 og hafði
mælt hitann á ferð sinni til Grænlands 1838 og til íslands
1839—1840. Irminger gat ekki fallizt á skoðanir Schythe’s
hvað snerti straumstefnur við Island og skrifaði grein2 á
móti. í henni hrekur hann meö rökum ályktanir Schythe’s og
bætir við mörgum fróðleik um hita sævarins, um hafísrek og
um hraða golfstraumsins eptir athugunum ýmsra skipa. Arið
1853 gaf Irminger út ritgjörð um strauma og almennt eðli
þeirra3; hefir hann þar safnað saman mörgum athugunum um
straumastefnu i Atlantshafi, sævarhita o. fl. einkum nærri
Is-landi. Meðal annars sýnir höf.. að grein af golfstraumi
streym-ir norður með Islandi að vestan fyrir framan Faxaflóa og
Breiðafjörð; þessi straumkvísl heldur burtu hafis úr flóum
þessum og gjörir loptslag miklu mildara vestan á íslandi en
það annars væri. I ritgjörð þessari talar höf. einnig um
og var vinur hans alla æfi án þess nokkurn tíma að ganga of nærri
virðingu sinni. hafði liann mikil áhrif á Friðrik og jafnan til hins betra.
svo hann kom mörgu góðu til leiðar. Irminger fór sem sjóliðsforingi
ótal sjóferðir víða um heim, á árunum 1847—48 var hann skipstjóri á
herskipinu »0rnen« og tókst þá að bæla niður svertingja-upphlaup í
nýlendum Dana á Guinea-strönd og í Vestindíum. Arið 1850 var hann
stutta stund sjómálaráðgjafi og 1863 sendiherra á Þýzkalandi. 1866
flutti hann Dagmar drottningar-efni til Rússlands og var opt notaður
til mikilsháttar starfa og sendiferða í ríkisþarfir. Irminger var af
öll-um mikils virtur og sómamaður og snyrtimaður i öllu. hann unni
vís-indum og fróðleik og ritaði margt um eðli hafsins. Hann var einn af
stofnendum landfræðisfélagsins í Kaupmannahöfn.
’) J. C. Schythe: tagttagelser af Atlanterhavets Temperatur i
Overfladen (Nyt Archiv for Sövæsen II. 1843).
s) C. Irminger: Golfströmmens Hastighed, Strömmen ved Island
m. m. (Nyt Archiv for Sövæsen II. 1843, bls. 191-200).
3) C. Irminger: Havets Strömninger m. m. (Nyt Archiv for
Sö-væsen. 2. Række VIII. 1853, bls. 115—137).
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>