- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / IV. /
128

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

128

með jafnhitalínum eptir ársfjórðungum. Að þvi er ísland
snertir, studdist höf. helzt við mælingar á sævarhita, sem
gjörðar höföu verió í Reykjavík og Stykkishólmi.

Eptir 1870 fara sævarrannsóknirnar að verða
margbreytt-ari, ýmsar þjóðir gjöra út leiðangra til þess aó kanna höfin
á vel útbúnum skipum meö mörgum vísindamönnum og
hin-um beztu áhöldum af ýmsu tagi og verða þau alltaf betri og
hentugri, eptir þvi sem revnslan verður meiri. Nú er eigi
aðeins stikað dýpið: menn mæla líka hita sævanns uppi og
niðri, rannsaka strauma, seltu og efnasamband sjóarins,
eðlis-þyngd vatnsins. kolasýru og lopttegundir, lit sævarins og
gagn-sæi. hió margbreytta dýra- og jurtalíf ofar og neóar í
sjón-um. leöjutegundir á mararbotni og margt fleira. Þekkingunni
utn eðli sjóarins flevgöi þvi fram á hinum siðustu 30 árum

r

19. aldar. A timabilinu 1870—80 var leiðangur Norðmanna
á skipinu »Vöringen« (1876—1878) langþýðingarmestur fyrir
þekkinguna um Norðurhafið milli Islands og Noregs. Foringi
ferðarinnar var H. Mohn (f. 1835). háskólakennari í Kristianíu
og formaður hinnar norsku veðurfræðisstofnunar; hann fékkst
á ferðinni mest við hita-rannsóknir og strauma. Skipstjórinn
Wille stóð fyrir dýpta-mælingum, vísindamennirnir Svendsen,
Tornöe og Schmelck rannsökuðu efni vatnsins, eðlisþyngd og
lopttegundir, en Sars, Danielsen og Friele athuguðu dýralífið.
Um rannsóknir þessar gaf norska stjórnin síðar út stóreflis
ritsafn1 á norsku og ensku og má af því fá mikla vísindalega
fræðslu um höfin nærri Islandi. Þar er fyrst sagt frá
ferð-inni sjálfri og áhöldum og verkfærum, þar eru itarlegar
rann-sóknir á lopti í sjónum, kolasýru, saltmagni og föstum efnum,
ennfremur er leðjutegundum sævarbotnsins lýst, loptslagi og
veðráttufari. dýptum sjóarins, hita og straumum, uppgufun
vatnsins o. fl. Þar eru einnig margar og langar ritgjörðir
um hin lægri dyr hafsins og margt fleira. Hér yrði oflangt

(Forhandlinger i Videnskabs-Selskahet i Christiania Aar 1869. Chria
1870. bls. 321-329).

’) Den norske Nordhavs-Expedition 1876—1878. Kristiania 1880—
1902, fol.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:46 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/4/0140.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free