Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
fræðinga um surtarbrandinn hafa verið mjög mismunandi og
á reiki, en 1868 tekur Oswald Heer af öll tvímæli i þessu
efni og sýnir að i brandinum eru leifar af skógi, sem í
fyrnd-inni hefir vaxið á Islandi og hefir engin siðan mótmælt því.
Pess má ennfremur geta, að Fr. Johnstrup rannsakaði 1873
efni í íslenzkum mókolum og surtarbrandi1.
Einsog hér hefir veriö bent á sýnir surtarbrandurinn,
að blágrýtismyndanir íslands eru til orðnar á þeim hluta
tertiera timans, sem kallaður er »miocene«. Annars er mjög
litið um steingjörvinga á Islandi, sem geti verið til leiðbein-
r
ingar við aldurs-ákvörðun jarðlaga. A Tjörnesi vestanverðu
hafa menn fyrir löngu í leirbökkum hjá Hallbjarnarstöðum
fundið mikinn urmul skelja og hafa flestir náttúrufræöingar,
sem ferðazt hafa á Norðurlandi komið þangað og er því
Hallbjarnarstaðakambs að einhverju getið í flestum
ferðabók-um. Þar er einnig surtarbrandur nærri, í Hringvershvilft i
5 lögum. Eggert Olafsson, G. G. Winkler o. fl. höföu lýst
skeljum úr Hallbjarnarstaðarkambi, en ekki höföu menn neina
vissu um aldur þessara steingjörvinga fyrr en 1871, þá
rann-sakaði hinn danski skeljafræðingur 0. A. L. Mörch skeljar
þessar og komst að þeirri niðurstöðu, að þær væru frá því
timabili i »pliocene«, er fræðimenn kalla »red crag«; eru þær
myndanir einna algengastar suðvestan til á Englandi, i
hér-uðunum Suffolk og Nordfolk. Mörch fann 61 skeldýrategund
meðal steingjörvinga úr Hallbjarnarstaðakambi, af þeim hafa
23 tegundir eigi fundizt lifandi, en steingjörvar i
Crag-mynd-unum i Englandi og Belgíu, 26 tegundir lifa enn i
norðurhöf-um, en finnast þó lika steingjörvar i Crag, en 4 höfóu áður
aðeins fundizt lifandi2.
’) Fr. Johnstrup: Om Kullagene paa Færöerne. samt Analyser af
de i Danmark og de nordlige Bilande forekommende Kul (Oversigt over
Vidensk. Selsk. Forhandl. 1873, bls. 181-182. 184).
’) O. A. L. Mörch: On the mollusca of the Crag-formation of
Iceland (The Geological Magazine. Vol. VIII. London 1871, bls. 391 —
400). Síðan hafa enskir fræðímenn Givyn Jeffreys og Searles V. Wood
rannsakað skeljar frá sama stað og komizt að sömu niðurstöðu. sbr. J.
Starkie Gardner: The Tertiary Basaltic Formation in Iceland (Tbe
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>