Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
218
Zirkel á íslandi og W. Preyer athugaði sérstaklega fugla.
Aptan við ferðabók þeirra er skrá um íslenzk hryggdýr, sem
er tekin úr öðrum bókum að því er snertir spendýr og fiska
en fuglatalið1) er sjálfstætt og að mörgu leyti bvggt á
athug-unum W. Prever’s sjálfs. Skýrsla þessi telur 103
fuglateg-undir, þaraf21 flæking eða sjaldgæfa fugla2): hún er að mörgu
fróðleg og inniheldur ýmislegt nýtt; af sumum fuglum eru
þar alllangar lýsingar t. d. af fálka, rjúpu, húsönd, kjóa, álku
o. s. frv., þar eru stærðamælingar allmargar og víða lýst
eggj-um. Fuglaskýrslur W. Preyer’s og A. Newton’s eru beztu
ritin um islenzka fugla, sem út komu á þessu timabili eptir
að Faber andaðist. Þá má enn geta þess, að W. Prever
samdi ítarlega ritgjörð um geirfuglinn3) og segir sögu hans
eptir flestum gögnum. sem til voru. Frá 1863 til 1880 var
ekkert prentað um íslenzka fuglafræði, sem verulega þýðingu
hafði.
Þess hefir fvrr verið getið, að Fr. Faber ritaði islenzka
fiskifræði4), sem kom út 1829 og eru þar taldar 49
fiskateg-undir og auk þess af lægri sævardýrum allmargar tegundir
(III., bls. 237). í ferðabók Prever’s og Zirkel’s er íiskatal
Faber’s aptur prentað og eins er fiskatal í bók Th. Gliemann’s.
Siðan Faber leið hefir engin bók og ekkert rit i samanhengi
verið samin um alla fiska Islands, en ýmsir islenzkir fiskar
hafa verið nefndir hér og hvar, optast i athugasemdum á
’) W. Preyer und F. Zirkel: Reise nach Island im Sommer 1860.
Leipzig 1862, bls. 384-431. Sbr. Ibis. IV.. 1862, bls. 295—297.
2) Benedikt Gröndal telur (1895) 109 tegundir fugla á íslandi (87
vissar, 22 flækinga); H. H. Slater telur (1901) 115 tegundir (104 vissar,
11 óvissar).
’) W. Freyer: Ueber Plautus impennis Briinn. (Journal fiir
Orni-thologie herausg. von J. Cabanis. Bd. X. 1862. bls. 110-124,
337-356).
4) Fr. Faber: Naturgeschichte der Fische Islands. Frankfurt a. M.
1829, 4°. J. H. Reinhardt skrifaði langan ritdóm um bókina í
Maaneds-skrift for Litteratur VII. Kbhavn. 1832. bls. 189-216; hann finnur
all-margt að ritinu. en telur það þó virðingarverða tilraun og endar með
því að geta þess. að það stæði íslendingum sjálfum næst að rannsaka
fiska við strendur íslands og óskar þess, að þeir taki nú rögg á sig.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>