- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / IV. /
224

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

224

einstöku dýr fá raenn þó úr bókum um dýrafræði nálægra
landa, einkum um Noreg og Grænland, en það er fyrir utan
takmörk þessarar bókar að skýra nánar frá því. Framan af
19. öld hafa víst engar rannsóknir verið framkvæmdar, sem
að þessu lutu, og enginn safnaði neinu fyrr en þeir L.
Thiene-mann og Fr. Faber a árunum 1819—21 skoðuðu nokkuð af
ströndum Islands og söfnuðu allmiklu, þó stefndu rannsóknir
þeirra yfirleitt i aðra átt, sem fyrr hefir verið getið. Japetus
Steenstrup og Jónas Hallgrimsson söfnuðu mjög miklu, svo
dýrasafnið í Kaupmannahöfn auðgaðist stórum aö islenzkum

r

náttúrugripum; þá kom C. Bergmann til Islands 1846 með
þeim Sart. v. Waltershausen og Bunsen; hann safnaði líka
töluverðu1), en Otto To^ell rannsakaði 1857 fyrstur aö mun
sjóinn kringum landið meó botnvörpum og eru dýr þau, sem
hann náói, geymd í ríkissafni í Stokkhólmi. Árið 1860
þeg-ar leggja átti fréttaþráð til Islands, var auk skipsins »Fox«,
sem áður var getið, herskipið »Bulldog« sent til íslands og
Grænlands til þess að stika dýpi á þessari leið; á því skipi
var náttúrufræðingurinn O. C. Wallich og safnaði hann nokkru
af sædýrum við strendur íslands. Arió 1872 safnaði T. A.

r

Verkriizen sjódýrum í Faxaflóa fvrir utan Reykjavik. A
árun-um 1840—70 söfnuðu ýmsir einstakir menn, sem dvöldu lengri
eða skemmri tíma á íslandi, töluverðu af sjódýrum og komust
þau flest á dýrasafnið í Kaupmannahöfn; meðal þeirra manna
iná helzt nefna sæforingja M. Suenson, læknana Hallas og
Wiinstedt, og kaupmennina Steincke og Johnsen, J. Oudmann,
H. P. C. Moller o. fl. Chr. Grönlund safnaði vatnssníglum
(1868) og Þorvaldur Thoroddsen landkuðungum og
vatna-kröbbum (1876). Þá söfnuðu foringjar á herskipum við Is-

’) C. Bergmann gaf háskólanum i Göttingen dýr og plöntur, sem
hann hafði safnað á íslandi og er til prentuð yfirlitsskrá yfir safn
þetta í »Nachrichten von der Georg-Augusts-Universitát und der königl.
Gesellschaft der Wissenschaften zu Göttingen« 1847, bls. 90—92.
Dýra-tegundirnar hefir Leuckart ákveðið; þar eru talin: anthozoa og
hydro-ida 2 teg., echinodermata 3 teg., möttuldýr 1 teg., lindýr 30 teg.,
krabba-dýr 13 teg.. ormar 28 teg. Bergmann gaf líka 70 fuglshami og 85
plöntutegundir.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:46 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/4/0236.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free