Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
239
því er þjóðunum áríðandi að fá glögga hugmvnd um
náttúru-skilvrðin, sem líf þeirra er bundið. Þó nd þroskun
þjóð-félaganna geti haft nokkurn framgang svo sem
meðvitundar-laust og af þvingun umheimsins, þá kemst þó ekki fullt skrið
á framfarirnar fyrr en einstaklingarnir bera glöggt skyn á
náttúruöfl þau, sem þeir eiga við að stríða. og eru vaknaðir
til meðvitundar um stöðu sina gagnvart umheiminum.
r m
A hinni 20. öld eru miklar líkur til þess, að þekkingin
t t
um náttúru Islands aukist að rniklum mun. Islendingar eru
nú teknir að rakna við og farnir aó hneigjast meira að
nátt-úruvísindum en áður; þeir hafa þegar á seinasta fjórðungi
19. aldar sjálfir að mun aukió vísindalega þekkingu um
land-fræði og náttúrufræói íslands; það er engin ástæða til aó
halda, að áhugi þessi dofni, miklu fremur má vænta þess, aó
hann aukist með vaxandi menningu þjóðarinnar, því þá
hljóta menn að sjá, hve mikla þýðingu það hefir að þekkja
landið sitt og að rannsaka þá náttúru, sem þeir lifa í og
dag-lega þurfa að glíma við. Vísindaleg þekking á náttúrunni er
ein af helztu máttarstoðum framfaranna hjá öðrum þjóðum
og mun líka verða það hjá Islendingum. Ef atvinnuvegum
á að farafram, verður að rannsaka náttúruna og spyrja hana
til ráða. En náttúruskoðanin hefir líka æðra mið, hún
vikk-ar sjóndeildarhringinn og kennir oss að elska náttúruna og
landið sem vér búum í, skerpir skilninginn og opnar ókunna
heima. Allt of margir ganga sjónlausir og sofandi gegnum
undraríki náttúrunnar og heyra hvorki né sjá allan þann
dýrðarljóma, sem vér daglega höfum fyrir augum. Með
vax-andi menningu opnast skilningarvitin og vér gleðjumst yfir
fegurð tilverunnar, sem vér áður ekki kunnum aó meta,
hug-urinn hverfur 1 hæðirnar og leitar sannleikans, en það er hið
æðsta takmark mannlegs anda.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>