Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
26
Sjórinn kringum íslancl.
hryggur sá, sem gengur frá Skotlandi til Grænlands um
Island og Færeyjar, hefir mjög mikil áhrif á sævarhitann i
djúpinu, hann er þröskuldur, sem skilur sævarhita hins
suð-ræna Atlantshafs frá hinu iskalda vatni i Ishafsdjúpinu. í
Norðurhafinu, milli Noregs og Islands, er hitinn dýpst i
trog-inu á 1000 til 1500 faðma dýpi l°,i til -f- l°,e; á 600
faðma dýpi fyrir norðan hrygginn -f- 0°,5 til -f- 1°, en fyrir
sunnan hann á sama dýpi -f- 6°, á 400 faðma dýpi er enn
-f- 0°.5 fyrir norðan en -f- 6—7° fyrir sunnan landhrygginn.1)
Af hinu iskalda botnvatni kemst ekki einn dropi suður fyrir
hrygginn. Allur sjór milli Noregs og Islands, ofan á hinu
kalda Ishafsdjúpi. er heitur (meir en 0°) 2—400 faðma
niður, þó er skemra niður að kalda vatninu við
austur-strönd Islands en við vesturströnd Noregs og heitur sjór er
ofan á öllum hryggnum. Svo fljót er hitabreytingin við
landhrygginn á 2—800 faðma dýpi, að i 2l/a mílu fjarska
er á sama dýpi 5° hitamismunur, en á yfirborði er varla
V20 munur. Hryggur þessi hlifir hinum syðri pörtum
Atlantshafs frá kælingu af isköldu heimskautsvatni og hefir
þannig mikil áhrif á útbreiðslu dýra- og jurtalífs.
Par sem heitir og kaldir úthafsstraumar mætast
eða skiftast á eftir árstimum, er hiti sævarins mjög
breytilegur i hinum efri lögum og oft heitt og kalt
vatn á vixl; við Island ber mest á þessu fyrir norðan og
vestan land, i Grænlandshafi, þar sem Pólstraumur mætir
kvíslum úr Golfstraumi og vatnslögin eru mismunandi
seltu-mikil. Heita vatnið úr Golfstraumnum hefir meiri mátt i
Grænlandshafi en við mætti búast, þar sem svo mikið isrek
er með Pólstraumnum gegnum sundið milli Islancls og
Græn-lands. Heita vatnið nær niður að botni sunnan við
land-hrygginn milli Grænlands og Islands og streymir yfir hann
hið neðra, en hið kalda vatn Pólstraumsins verður ofan á,
af þessu skapast sambreiskingur heitra og kaldra laga og á
l) H. Mohn: Nordhavets Dybder, Temperatur og Stremninger.
Den norske Nordhavs-Expedition II. Kristiania 1887.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>