Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Irmingerstraumur.
39
köldu og volgu sævarföll sífelt að glíma í höfunum
kring-um Island. A haustin og fyrri part vetrar breiðist hið
kalda bræðsluvatn frá hafísunum yfir stór svæði af
Golf-straumnum, svo fiatarmál hans minkar á yfirborði, saltminna
vatn (3,4°/°) kemst þá oft langt suður eftir ofan á
Golf-straumsvatninu, sem hefir 3,5°/o seltu eða dálítið meira.
I opinu á Danmerkursundi er Irmingerstraumurinn
lang-mestur og voldugastur þar sem hann skiftist og er þar mjög
djúpur, svo heita vatnið nær alveg niður að botni; á 65°
n. br., vestur af Snæfellsjökli, hefir fundist 6° hiti á 300
faðma dýpi og við botninn, á 1100 föðmum. rúrnra 3° hiti;
á sama breiddarstigi fyrir austan Island er sjórinn miklu
kaldari. Eftir stefnu frá Islandi til Hvarfs á Grænlandi er
alstaðar i djúpinu hitastig, þó kaldara sé Grænlandsmegin.
Petta alt sýnir, hve afarmikinn hita Golfstraumurinn ber
vestan að Islandi. Pað má nú þykja kynlegt, að sjórinn
skuli vera svo heitur út af Vestfjörðum, þar sem jafnan er
svo stutt til hafisa við Grænland, en hér er þess að geta.
að þessi mikli vatnshiti kemst ekki norður fyrir land nema
á yfirborði, þvi landhryggurinn neðansævar, sem gengur
frá Vestfjörðum beint norðvestur til Grænlands, myndar
einsog syðri hryggurinn takmörk hins heita vatns og hins
kalda úr Ishafsdjúpi. Fyrir sunnan hrygginn rennur hið
kalda vatn Pólstraumsins fram með Grænlandi alt suður til
Hvarfs ofan á hinu volga Golfstraumsvatni. og }Tfirborð
kalda straumsins kvað vera dálitið hærra (2—3 fet) en
yfir-borð heita straumsins,1) er rennur jafnhliða i öfuga átt.
Norðaustur af hryggnum er kalt vatn (alt að -f- 1°,5) viðast
við botninn, þegar nokkuð dregur frá Islandi, en þetta
is-kalda vatn kemst eigi suður fyrir hrygginn. Hið heita vatn
Irmingerstraumsins er norður af íslandi viðast ofan á, þó
er sumstaðar nærri Pólstraumnum aftur iskalt vatn ofan á
hinu heita vatni, það er kólnað við bráðnun iss, saltminna
og léttara og flýtur þvi ofan á. Pannig eru misheit lög
niður á við á takmörkum straumanna og lika misheit bönd
M Axel Hamberg: Hydrograíisk-kemiske- iakttagelser I, bls. 23.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>