- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
56

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

56

Sjórinn kringum ísland. Grunnsævi.

á útmánuðum o. s. frv. Hafís rekur alloft út meö
Reykja-nesskaga og stöku sinnum ber það við, að jaki hefir flækst
inn á Faxalióa. sá ís kemur altaf að sunnan og austan.
alclrei að norðan og vestan. A Vestfirði vestanverða kemur
sjaldan ís nema í miklum isárum. og það ber varla við að
jaki komist suður fyrir Látraröst. Arið 1 695 var hið mesta
isár á Islandi, sem sögur fara af, og skulum vér þvi geta þess
nánar eftir frásögum annála. Vetur var þá harður um alt
land með snjóum og norðanstormum. isalögum, hörkum og
frostum. Hafis kom fyrir norðan snemma á árinu og lá
fram um þing; norðanveður ráku isinn austur fyrir og svo
suður, var hann kominn fyrir Porlákshöfn fyrir sumarmál.
og liinn 14. april rak hann fyrir Reykjanes og Garð og inn
á fiskileitir Seltirninga og að lokum að Hvalseyjum og i
Hitárós, og eru þess annars engin dæmi að slikt hafi komið
fvrir. Hafisinn rak inn á hverja vik og ganga mátti á
is-um af Akranesi i Hólmskaupstað (Reykjavik). A Faxafióa
var isinn rúmlega fram i vertiðarlok, hann braut skip undir
6 mönnum fyrir Garði, en þeir gengu allir til lands. Pá
braut og mörg útlend skip i isum. Að vestan kom isinn
fyrir Látrabjarg, en norðanlands mátti riða og renna fyrir
hvern fjörð um vorkrossmessu. Isinn gekk sumstaðar upp
á land og varð að setja báta lengra upp en vandi var til;
nyrðra sást eigi út fyrir ísinn af hæztu fjöllum, syðra sást
út fyrir hann og kaupskipin fyrir utan, sem hvergi komust
að landi, og eigi varð heldur komist til þeirra og komust
menn i mikla þröng af siglingarleysinu, þvi fiest vantaði er
á þurfti að halda. Vorið var kalt og hart með litlum
gras-vexti og varð þvi grasbrestur mikill um sumarið, einkum
sunnan og vestan lands, urðu sumstaðar ekki slæg tún, en
sumstaðar var iiutt heim taða i pokum; á smájörðum
feng-ust 10—15 hestar af töðu, en 5 kaplar á engjum þar sem
áður féllu á 80 Fyrir norðan var grasvöxtur betri, en bágur
fyrir austan. Haustið var regnviðrasamt og urðu úíi hey
allviða, gerði fjúk og snjó á alþiða jörð fyrir
allraheilagra-messu og var veðrátta hretviðrasöm til jóla. Veturinn á
eftir varð mikill fellivetur og dóu menn af hungri i í*ing-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0070.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free