Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
62
Strendur Islands.
sfcrendur landa, sjórinn efcur sig smátt og smátt inn i fjöllin
að neðan, brytur niður klettana, mylur þá og færir burt.
/
A annesjum við Austfirði og Vestfirði má alstaðar sjá
stór-virki sævarins, þó blágrýtið sé hart. sem á er herjað. Par
eru strandabergin viða sunduretin með hellrum og
skvomp-um, standar og drangar upp úr sjónum fyrir utan og
brim-barin björg i hverri vik; eru slikar strandlengjur oft mjög
hrikalegar. Par sem brimið ræðst á björg og kletta, brýzt
sjórinn inn á milli laga, i sprungur og bresti i berginu og
inn með göngum. Gangarnir hafa upprunalega verið
sprungur uppfyltar með hraunleðju að neðan. sem hefir
storknað i glufunni. Gangarnir eru oft harðari en bergið
i kring, það liggur öðruvisi i þeim, súlurnar eru liggjandi,
en ekki uppréttar einsog i blágrýtisstrengjunum, svo sjórinn
á verra með að vinna á þær. Af þessu leiðir, að margir
drangar og stapar i sjónum eru gangbrot, sem brimið á ilt
með að vinna á, og geta sumir staðið brim og ósjó i margar
aldir, þó þeir séu háir og mjóir. Víða liggja gangarnir
eins og bryggjur í sjó, einsog hlaðnir veggir úr trébútum,
þannig er t. d. Snæfjallabryggja, sem stenzt á við
Arnardalsklett, hinu megin við Isafjarðardjúp; svipaðar
brik-ur ganga út i sjóinn hjá Hafranesi við Reyðarfjörð.
Sum-staðar er urmull slikra þvergirðinga, sem sjórinn hefir ekki
getað unnið á, svo er t. d. i Breiðdalsvik eystra, þar ganga
margar hamrabryggjur út i sjó og i áframhaldi þeirra eru
sker og flúðir yfir þvera víkina, svo þar sjást margar
brim-rastir hver fyrir innan aðra. Fram með Hornströndum eru
margir stapar og drangar og eins við Vatnsnes, þar eru
r
Anastaðastapi og Hvitserkur merkastir. Hvitserkur
austan við nesið er afarmikil eji þunn hella, sem mænir
hátt i loft upp, hefir sjórinn neðst brotið þrjú göt i
gegn-um helluna. svo hún stendur á fjórum veikum fótum.
Lög-un hinna ótal mörgu dranga og stapa kringum strendur
Is-lands er mjög ýmisleg eftir efni bergsins og öðrum
kring-umstæðum. A stöku stað eru móbergsstapar upp úr sjó, en
þeir haldast vanalega uppi af þvi blágrýtis-gangar kvislast,
i gegnum þá. Sumstaðar eru smáeyjar og skerjahópar
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>