- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
112

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

112

Dalmyndanir.

ínynnum og eru oftast slæmar (Paj3Ós, Hornafjörður). Til
eru sumstaðar smáhafnir i gömlum gigum eða i svipuðum
hringmynduðum lægðum (Elliðaey). Mörg kauptún eru til
á Islandi. sem ekki hafa neina höfn. en skip liggja þar
fyrir opnu hafi, stundum með litlu afdrepi af höfðum og
tiollum. I>ó slikir verzlunarstaðir iiggi inni i fióum, þá er
skipum þó hætta búin ef eitthvað er að veðri (Húsavik,
Hofsós, Sauðárkrókur, Skagaströnd, Blönduós o. ii.).
Kaup-tún af þessu tagi hafa skapast af nauðsyn manna nærri stór- •
um sveitum, þar sem ströndin er fjarðalaus. 011
suður-strönd Islands er hafnlaus, eins og fyrr var getið,
úthafs-bylgjan brotnar með miklu brimi á söndunum og auk þess
er viða mjög aðgrunt. Hvergi er þar afdrep eða góðar
lendingar við sandana, en sumstaðar er þó landslagi svo
liáttað á ströndu þessari. að menn geta notast við slæm
skipalægi t. d. á Eyrarbakka, þar gengur hraun i sjó fram og
hefir brimið brotið röncl þess, svo hraunsker liafa myndast fyrir
framan, þar er litilsháttar hlé fyrir fá skip, sem oftast eru
bundin, svipað skipalægi er i Grindavik og viðar. er Vik
i Mýrdal, þar er skipalægi fyrir opnu hafi i lítilli vik, sem
gengur inn milli móbergsfjalla.

Eins og alkunnugt er, bygðist ströndin siðast milli
Hornafjarðar og Reykjaness, »þar réð veður ok brim
land-töku manna fyrir hafnleysis sakir ok öræiis«, segir
Land-náma.1) Annars sigldu landnámsmenn hvar að landi sem
þeim sýndist og lögðu hinum smáu skipum sinum upp i
siki og árósa 2) I sögunum eru nefndir mjög mai’gir
upp-siglingarstaðir, sem hafskip komu á, en kaupstefnur voru
þó helzt haldnar á þeim stöðum, þar sem ibúar i stórum
sveitum áttu hægast með aðflutnmga, þannig er i sögunum
einna oftast getið um verzlun á Eyrum, Hvitárvöllum og
Gásum við Eyjafjörð. Skipakoma og verzlun var i fornöld
ekki mikil, skipin voru smá og lítið iiutt af þungavöru

Sbr. Egilssaga 1892; bls. 56.

2) »Var þá víða höfð uppsát kaupskipum í ár eða lækjarósa eða
í sík«, segir Egilssaga (Reykjavík 1892. kap. 39, bls. 96).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0126.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free