Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Eyjar kringum ísland.
Fvrir Austfjörðmn eru fáar eyjar; norðan til aðeins
nokkrir hólmar. sker og boðar rétt við land. Fyrir utan
Vopnafjarðarkaupstað er L ei ð a r h ó 1 m u r og er þar æðarvarp
og svo Kaupstaðarhólmar. Út af Kollumúla er
Bjarn-arey, hún er grasivaxin og hefir þar verið útræði og
há-karlaveiði. Par duldist Jón Guðmundsson lærði i þrjú ár
(1632—35) er hann var ofsóttur fyrir galdra.1) Svo má
telja, að eyjalaust sé þaðan suður að Reyðarfirði, en þar er
Seley að norðanverðu við fjarðarmynnið og Skrúður að
sunnan. Selej7 er lág. fiöt og grasivaxin, þar hefir og
verið fiskiúthald og hákarlaveiði. Skrúður (Skrúðey) er
liá og brött klettaej’, hin hæsta við Austurland (rúm 300
fet á hæð); Skrúður liggur undir Vattarnes og er hálfa
16. ínynd. Skrúður.
milu frá landi, út af Reyðarfjalli; þar er graslendi að ofan
og góð beit, svo fé getur gengið þar sjálfala vetur og sumar
og verður mjög feitt; i björgunum er rita og svartfugl.2)
Par er hellir mikill að austanverðu, liklega myndaður af
sævargangi, þar hafði Skrúðsbóndinn aðsetur, sem þjóðsögur
segja.3) Vestur af Skrúðnum í mynni Fáskrúðsfjarðar eru
skerjaflesjur (Æðarsker) og lág og flöt ey, sem heitir Andey,
þar er jarðvegur með grasi nokkru og viðir og sauðfjárbeit
Landfræðissaga Islands II. bls. 76.
2) Jónas Hallgrímsson bftfir kveðið um Skrúðinn sem kunnugt er.
Sbr. Fjallkonan 1895, bls. 136. Árið 1788 vildi Björn nokkur Magnús-
son fá leyfi til að byggja í Skrúðey (Lögþingisbók 1788, bls. 31—32.).
s) Islenzkar Pjóðsögur Jóns Arnasonar I, bls. 196. Pjóðsögur og
munnmæli. Reykjavík 1899, bls. 150-151.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>