- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
138

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

184

Landslag. 183

sumram sést á stórum svæðum livergi lækur eða
vatns-pollur; mikill hluti af Re^kjanesskaga er vatnslaus af
hin-um sömu orsökum I móbergsfjölium þessum eru þó viða
djúp gil og gljúfur vatnslaus með stórum vatnsbörðum
linull-ungum. f’essar vatnsrásir fyllast af ólgandi elfum á vorin
i leysingum eða þegar þýðviðri ganga á vetrum, og eru þá
alveg ófærar með koflum. Hvassviðri og sandrok hefir
mikil áhrif á yfirborð móbergsfjalla og alt útlitþeirra;
rok-viðrin þeyta möl og sancli gegnum skörð og dali og þ}rrla
smágrjóti kringum tinda og núpa, sverfa fjöllin á löngum
tima, svo þau eyðast og etast sundur. Ofsaveður á öræfum
þeyta möl og grjóti eftir flatneskjunum, og bera hörðustu
blágrýtisbjörg og grágrýtishellur þess mörg merki. hvað þá
heldur hin mjúkari móbergsfjöll; harða grjótið er skafið og
fægt að ofan, bólugrafið af sandroki og með gljáandi skán;
móbergsfjöllin eru einsog sundurtættar rústir og
hraunmol-arnir i þussaberginu stancla út úr, af þvi hið lina móberg
milli þeirra er etið burt; stundum standa blágrýtisnybbur
upp úr móbergshryggjunum, af þvi þær eru harðari
Yíir-borð móbergsfjalla er oftast þakið eggjagrjóti, hraunmolum,
sem hafa losnað úr berginu. er tengiefnið eyddist af
áhrif-um vatns og vinda, hið fasta berg sést þá aðeins i giljum
og í hryggjum, hnúkum og oddum. er upp stancla gegnum
lausagrjótið. Mótstöðuafl móbergsins gegn ytri áhrifum er
þó mjög mismunandi eftir hörku bergsins, hin yngstu
mó-bergsfjöll eru vanalega lausust i sér, hin elztu hörðust. Oft
getur verið mjög örðugt að ganga brött móbergsfjöll, af þvi
þar er mikil lausaskriða ofan á, en hart berg undir, með
eggjagrjóti og nybbum upp úr. Hið smágjörva dust, sem
leysist úr móberginu, berst með vindi niður i dali og
lág-lendi og stundum i fjarlæg héruð, og myndast úr þvi smátt
og smátt móhellulög, sem viða eru mjög þykk i dölum og
á láglendum þeim, sem næst eru miðlands-öræfunum. Hið
harðara móberg er lika ummyndað á ýmsan hátt, af
áhrif-um vatns og lofts, þar sem rakinn kemst niður i sprungur,
breytist bergið og fær anuan lit, sumstaðar fyllast
sprung-urnar af ýmsum steinefnum (geislasteinum, kalki); stundum

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0152.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free