- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
159

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Botnar.

159

gryti og jökulruðningi uppi á hálendinu, en hafa siðan
fandið fyrir sér djúpa, gamla blágrýtisdali og renna eftir
þeim i bygð; þannig er um fiestar stórár á Norðurlandi og
sumar eystra (Blanda, Héraðsvötn, Skjálfandalijót.
Lagar-fijót).

I sumum móbergsfjöllum, sem eru tiltölulega ung að
uppruna og laus i sér, hripar regnvatnið vanalega gegn um
grjótið og hverfur, og þó eru þar margir mjóir og langir
dalir vatnslausir á sumrum og ótal gljúfur og grafningar.
Þess konar móbergsmyndanir eru stórgerðastar á Fjöllum
fyrir austan Jökulsá i Axarfirði og milli Tungnár og Skaftár.
Eftir dölum þessum og gljúfrum rennur oftast mikið vatn i
leysingum á vorin, en liklega hafa þó ár runnið eftir þessum
móbergsdölum flestum i fyrndinni, sumstaðar er þar árburður
gamall, möl og hnullungagrjót undir móhellu og sandi, og
má vera að loftslag þá með köflum hafi verið rakameira en
nú. Sumstaðar renna jökulár gegnum slika dali, og nærri
Vatnajökli hafa kvislar sumstaðar stiflast i dölunum og
löng vötn hafa myndast. langmest þeirra er Langisjór.
Viða i móbergsfjöllum er urmull af djúpum gljúfrum og
grafningum, sem kvislast út frá hryggjum og tindum niður
eftir hliðunum; gljúfur þessi eru oft svo þröng og
þver-hnypt, að þau eru ófær yfirferðar. I leysingum veltast
kolmórauðar elfur eftir gljúfrunum og vegna hins mikla
halla og hinnar linu bergtegundar dýpka þau furðu fljótt,
enda veltist þar i fossfallinu stórgrýti, möl og sandur niður
rásir þessar. Flest af giljunum eru þurr á sumrum, en á
botni þeirra er urð af stórgrýtishnullungum. Slikir
grafn-ingar með hyldýpis gljúfrum liggja að Jökulsá i Lóni ofan
til, einkum við Kollumúla og Viðidal. Landslag er þar
mjög stórhrikalegt, fjallstindarnir hvassir og himinháir,
gljúfrin ægileg og hengiflug hvar sem litið er,
bergtegund-irnar eru marglitar og margbreyttar og klungrin öteljandi,
skriðjöklar og hjarnskaflar í lautunum innan um örmjóar
eggjar og kamba. Þá eru fjallgarðarnir milli Tungnár og
Skaftár ákafiega sundurgrafnir, einkum Skælingar og
Grænu-fjöli, gljúfrin eru margkvisluð eins og greinar á tré, og þurfi

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0173.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free