- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
162

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

162

Aðalhálendi íslands

smátt og smátt aflíðandi frá jöklum um miðbikið niður
að sjó, þannig má telja að nokkurnveginn jafn halli sé af
Sprengisandi suður og norður og eins frá Yatnajökli niður
undir Axarfjörð, en víðast gengur hálendið með bröttum
hömrum og fjöllum fram að sjó, einkum þar sem blágrýti
er aðalefni fjallanna.1)

Miðhálendi Islands er ekkert annað en eintóm gróðrarlaus
öræfi, hraun, sandar, urðir, holt og meiaöldur. Mishæðir
eru þar ekki sérlega miklar utan jökla nema einstök fell
eða fjöll úr móbergi, sum æði stórvaxin, svipuð
jökulhálend-unum að sköpulagi, þó þau séu minni, og flest eldbrunnin.
Þessi stöku fjöli eru sumpart leifar af þykkum
móbergs-myndunum, sem legið hafa ofan á hálendinu, en eru nú að
mestu eyddar, eða þá forn eldfjöll, sem orðin eru að rústum
af ágangi íss og vatna. Sumstaðar eru uppi á hálendinu
langir og mjóir móbergshryggir, skörðóttir með ótal tindum
(Dimmifjallgarður, Skælingar, Uxatindar, Tindaskagi,
Kálfs-tindar), en megin hálendisins er flatlendi, þó þar sé óvíða
alveg slétt. Þar sem ný hraun ekki hylja jörðu er
yfir-borðið viðast, eins langt og augað eygir, eintórilar
stór-grýttar öldur og holtabungur, sumstaðar melahryggir eða
þá sandar og leir, þar sem jökulvötn hafa runnið, sumstaðar
eldfjallaaska, hraunmylsna og roksandur. I iægðunum eru
vötn og tjarnir sumstaðar, og mýrabollar á hinum lægri
heiðum einkum að vestan.

Sá hluti hálendisins, sem liggur milli 1500 og 2500 fet
yfir sjó er alstaðar mjög gróðrarlítill og sumstaðar auðn
og öræfi, þar er varla nokkursstaðar samanhangandi
gras-flákar eða slægjulönd þó mýrabrok sé í lægðum á stöku
stað á vestur-heiðum og hagar fyrir sauðfé nokkrir
sum-staðar, þar er öræfa og eyðimerkurbragur á öllu, þó lands-

’) Stóran hæðauppdrátt yfir ísland hefi eg gefið út í Gotha á

l3yzkalandi 1905 (Höhenschichten-Karte von Island. Mælikvarði
1:750,000) í fyrsta bindi af bók minni: Island. Grundriss der
Geo-graphie und Geologie. Justus Perthes. Gotha 1905—1906, 4o. fví
miður er ómögulegt að gefa uppdrátt þenna út á Islandi fyrir
kostn-aðar sakir.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0176.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free