- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
190

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

164

Aðalhálendi íslands. 190

Eiríksjökli. sem eru 12—1800 fet á hæð, eru alstaðar
grá-grýtishraun undir, en viða eru þau hulin jökulruðningi og
öðru lausagrjóti, eða þá vötnum og mýrum. Gróður er
allmikill á öllu þessu sv’æði, hann fer eftir landslagi og
jarð-vegi, á Arnarvatnsheiði eru urðir, holt og ásar, þar er
lynggróður mikill og kindahagar, á Tvidægru hverfa
klappa-holtin undir þvkkri skán af lausagrjóti og þar eru flóar og
mýrgresi. Heiðar þessar gefa af sér mikil matföng fyrir
Hvitársiðu og aðrar nálægar bygðir; þar er afréttur ágætur,
silungsveiði óþrjótandi i hinum óteljandi vötnum, fuglatekja
er hér og allmikil, rjúpur, andir og álftir og fjallagrös mikil,
en grasaferðir eru nú viða lagðar niður.

Tvidægra liggur töluvert lægra en Arnarvatnsheiði og
er miklu mishæðaminni, hæðin á Tvídægru yfir sævarmál
er 14—1500 fet, en á Arnarvatnsheiði 17—1800 fet. Á
Tvidægru sést varla föst klöpp, þar eru aðeins lág
urðar-holt og endalausir fióar með ógrynni af vötnum, tjörnum
og pollum og er vesturhluti heiðarinnar nærri marflatur.
Tvidægra er á smnrmn einn með lökustu fjallvegum, þar
verða fyrir manni fúamóar með urð undir, fen og ótræðismýrar,
sem vaiia halda manni, hvað þá heldur hesti,
götuslitm-sjást ekki nema á stöku stað. A vetriun er gott að fara
yfir heiðina gangandi eða á skíðum, þvi þá er oft slétt yfir
af fönnum, vötn lögð og flóar frosnir. Gróður er á
Tvi-dægru alstaðar mikill einsog i sveit, mýrgresi á flatlendi,
en lyng og mosi á holtahryggjum. Með norðanátt er
þoku-bræla með sudcla algeng á heiðinni, leggur hana upp úr
Miðfirði og Hrútafirði og liggur hún oft iengi yfir flóunum
og vötnunum þó bjart sé annarsstaðar. Vötnin á Tvidægru
hafa verið sögð óteljandi, enda eru þau mjög mörg og

r

krókótt, Ulfsvatn er.þar stærst, norður af þvi eru
Urð-hæðir (1590’), sá holtahryggur er einna hæstm á heiðinni.
Vestur af Tviclægru er Holtavörðuheiði (1224’)
lang-tiðfarnasti vegurinn milli Suðurlands og Norðurlands, þar
er einsog skora i hálendið milli Norðurárdals og
Hrúta-fjarðar, þar sleppir grágrýti, en blágrýti tekur við. Vestan
við Holtavörðuheiði eru há blágrýtisfjöll, Snæfjöll og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0204.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free