Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
r
Obygðir og aí’réttir.
199
en lægöirnar milli þeirra eru allar fullar af hrauniun. Þessu
svæði mun nánar lýst i eldfjalla-kaílanum. Af hálsum þessum
má nefna Valafell nyrzt, Yalahnúk, Krakatind,
Rauðfossa-fjöll, Vatnafjöll, Grasleysufjöll, Trippafjöll, Hafrafell o. m. fl.
I krikanum vestan undir Torfajökli er Hrafntinnuhraun
(2359’) við upptök Markarfljóts, þar fyrir sunnan er
Laufa-fell og Laufaleitir, og er þetta svæði mjög hrjóstrugt og
alveg graslaust enda liggur það hátt yfir sjó (1800—2400
fet) og eintóm öræfi og jöklar i kring. Austar eru sandar
og öræfi á Fjallabaksvegi, liann liggur yfir hálendið milli
Torfajökuls og Mýrdalsjökuls. Suður úr Torfajökli ganga
ýmsir núpar og höfðar þar erOfæruhöfði ogKaldaklof
og sunnar Torfavatn og Mælif ellssandur, austar
Meyjastrútur og Mælifell. Vestur af Mælifellssandi
milli Rangár eystri og Markarfljóts gengur fram
hálendis-tunga mikil og há, þar er Grænafjall austast, en milli
efstu tindanna liggur jökull, og heitir þar
Tindfjalla-jökull (5036’) þar fyrir utan smálækkar hálendistungan og
þar er fjallið Prihyrningur (2126’) merkast; sunnan i
fjöllum þessum liggur Fljótshlið, niður undir
Markar-fljótsaura, en ofarlega i dalnum austanmegin liggur
Pórs-mörk og Goðaland undir Mýrdalsjökli.
Vér munum þvinæst leita þangað, sem fyr var frá
horfið, og lýsa nokkuð öræfunum milli Tungnár og Skaftár,
fjallgörðum þeim, sem þar ganga frá norðaustri til
suð-vesturs, frá Skaptárjökli suður i Torfajökul; meginhluti
þessara öræfa er ákaflega hrjóstrugur og þvínær alveg
gróðrarlaus, má svo heita, að þar komi aldrei menn né
skepnur norðan til. Fjallgarðar jiessir eru allir úr móbergi
og mjög sundurétnir af sandroki, á þeim eru ótal
skringi-lega lagaðir mórauðir og ljósleitir tindar, klettasnasir og
bungur, milli þeirra eru vikradalir alveg gróðrarlausir með
sifeldu sandroki þegar einhver vindur er, i fjöllum þessum
eru viða margkvisluð vatnslaus gljúfur, sem ekki er rensli
í, nema stuttan tima i vorleysingum. Nyrzt eru
aðalfjall-garðarnir þrir og er hinn austasti þeirra mestur og heitir
Fögrufjöll, og er Sveinstindur (3187’) syðst í þeim.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>