- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
213

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Snæfellsries.

218

vegur yfir fjallgarðinn til Dalasýslu um Bröttubrekku og
Sökkólfsdal, en þar fyrir vestan hefjast fjöllin aftur, þar er
Greldingafell, Vikrafell o. fl tindar, í þeim fjöllum er
surtar-brandur upp af Hreðavatni 1200 fet yfir sjó og neðar. Þá
kemur enn lægð i fjöllin um Langavatnsdal (695’) hann
var bygður til forna en er nú i eyði; norður úr honum
liggur vegur yfir Sópandaskarð niður i Hörðudal. Vestur
af Langavatnsdal eru ýmsir tindar og múlar, Trö llakirkj a
(2693’), Gjafi (2391’) o. fl., en mjög skerast fjöllin þar
sundur af dölum, bæði að sunnan og norðan, og brattir
múlar ganga milli dala niður að undirlendinu; suður af
Langavatnsdal er Skarðsheiði vestri (507’), þá kemur
Svarfhólsmúli (991’) og nokkru vestar gengur inn
Hit-árdalur, beggja megin við hann eru há fjöll, tindar og
hnúskar. Vestan við dalinn gengur fram hár múli,
Fagra-skógarfjall, utan i austurhliðinni á þvi fjalli niður að
Hitará er einkennilega lagað móbergsfell, sem heitir
Grettis-bæli, á þvi eru að ofan smátindar og oddar og gat i gegn,
sem Grettir á að hafa búið i. Um miðjan dalinn þveran
er röð af móbergsfellum, Bæjarfell hjá Hitardal, Hróberg
og Valafell i miðjum dalnum, og litlu ofar Klifsandur.
I Bæjarfelli eru margir einkennilegir klettar t d.
Nafna-klettur, þá eru þar einnig hellrar stórir og eru Fjár-

r

hellir og Sönghellir þeirra merkastir. Ur Hitardal er
vegur yfir i Selárdal i DalasýsJu og heitir Svínabjúgur.
Upp i múlann, sem heitir Fagrarskógarfjall ;ið austan gengur
Kaldárdalur og heitir fjallsöxlin vestan við hann
Kolbeins-staðafjall. Norður á þeim fjöllum eru ýmsir háir tindar
t. d Helgufell (2508’). Fyrir vestan Kolbeinsstaðafjall er
tiatlendi hraunum þakið að miklu leyti, þar heitir
Hnappa-dalur, þar upp af er fjallgarðurinn mikið lægri en austar og
liggur þar vegur um Rauðamelsheiði (730’) til
Skógar-strandar.

Snæfellsnes. Við Rauðamelsheiði hefst hinn eiginlegi
Snæfellsnesf j allgarður i þrengri merkingu, liann er úr
því alstaðar mjór, tindóttur og skörðóttur; að sunnan
tak-markast fjallgarðurinn víðast af beinum og bröttum hlíðum.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0227.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free