Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
226
Vestiirðir.
Við Tálknafjörð eru há fjöll á báða vegu, en nokkrir
smádalir og meiri bygð að norðanverðu, Selárdalshliðar
eru brattar hliðar mót hafi fyrir norðan fjarðarmynnið og
beygist þar fyrir hið stóra nes, sem skilur Tálknafjörð frá
Arnarfirði; nes þetta er 4mila á lengd og 2 milur á
breidd, hátt og klettótt og brattar hliðar á alia vegu, en
allmargir smádalir ganga þó inn að norðanverðu, og eru
merkastir af þeim Selárdalur, Bildudalur og
Otrar-dalur. Frá Bildudal liggja vegir yfir fjallið um
Tungu-heiði og Halfdán (1597’)• Við Suðurfirði er sumstaðar
mjó undirlendis-ræma, og smádalir upp af fjarðabotnunum
og i þeim viða skógar; sumstaðar er undirlendi ekkert og
bæirnir standa á skriðuhrúgum fyrir framan litla afdali og
gilskvompur. Milli Geirþjófsfjarðar og Borgarfjarðar er
breiður skagi (mila á breidd og 2x/2 mila á lengd), og heitir
yzta táin Langanes; sunnan á nesi þessu er brött hlið, en
að norðan ganga uppi það tveir bygðir dalir, Mosdalur og
Hokinsdalur, úr hinum siðarnefnda er vegur um
Steina-nesháls (669’) niður i Geirþjófsfjörð, frá Dynjanda liggur
lika vegur niður að sama firði yfir Dy nj andah eiði, en
þar er stórgrýtt mjög og ilt yfirferðar. Fjöllin á
norður-ströndu Arnarfjarðar eru innan til töluvert sundurskorin af
dölum og hvilftum með múlum og hnúkum á milli, þar
liggur leið til Dýrafjarðar yfir Rafnseyrarheiði (1728’);
utantil er mjög sæbratt, hrikaleg hamrafjöll að sjó fram, þó
er þar bygð á stangli; milli Stapadals og Lokinhamra eru
þverhnýpt björg 16—1800 feta há, og verða menn þar að
sneiða brattar skriður eða klöngrast yfir stórgrýti i fjörum;
er yfirferð þar örðug og hættuleg, emkum á hinum
svo-kallaða Hylluháls, og er þar sjaldfarið með hesta. Fyrir
utan Lokinhamra eru sömu björgin fyrir nesið, en þar má
fara eftir fornum brimhjalla; á einum stað gengur Sléttanes
grasivaxið i sjó útundan hömrunmn. Yzt á nesinu eru
af-skektir bæir, Svalvogar og Höfn, innanum ógurlegar
skriðu-hrúgur, en hrikalegir múlar og hyrnur fyrir ofan.
Fjöllin við Dýrafjörð eru beggja megin mjög grafin
sundur og standa fram múlar og fell milli kvosanna,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>