Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
230
Vestiirðir.
gengur upp frá Stað í Grunnavík. hann er grösugur og
engjar fyrir neðan hann, beint á rnóti Staðarclal er annar
dalur frá Snæfjallaströnd og er þar stutt yfir fjallgarðinn.
Inn af Grunnavik er höfði og lægð fyrir ofan. þar heitir
Staðarheiði (389’) en Höfðaströnd fyrir innan.
Fram með Jökulfjörðum er mjög litið undirlendi,
bygðin er i hallandi hliðum og mynnum dalverpa, en brattir
núpar á milli, enda er hér mjög hrjóstrugt og strjálbygt.
Upp af Lónafirði er Breiðaskarðshnúkur (2186’), á
eggjum þeim, sem kvislast margvislega milli dala á þessum
útkjálka, annars er hæð fjallanna hér sjaldan meh’i en 16—
1800 fet, en það ber mikið á henni, þvi fjöllin eru fiestöll
brött með hrikalegum núpum og hyrnum i sjó fram. Hvergi
er fósturjörðin eins beinaber einsog á þessum skaga norðan
við Skorarheiði, eintóm björg og klungur, gjögur og eggjar,
dalaskvompur upp af vikunum og siunstaðar botnar og katlar
niður i bjargbmnirnar, gróður er mjög litill og kuldalegur.
sumarið stutt, oft með úða og ísaþokum, en veturnir
snjóa-þungir. Norðan við mynni Jökulfjarða beint á móti
Stiga-hlið er Grænahlið, 800—lOOOfetahá björg i sjó fram, l1 2
mila á lengd, og heitir yzti höfðinn Ritur. Frá Sléttu víð
Jökulfirði liggur Staðarheiði (838’) niður i Aðalvík.
Aðalvik er stærsta bygðin á þessum kjálka, og ganga upp
frá vikinni ýmsar dalskorur milli núpanna, og dálitið
undir-lendi er syðst i vikinni. Vötn eru hér fyrir ofan
malar-kamba i flestum vikum. Norðan við Aðalvik er há
hamra-hlið á Straumnesi og svo kemur Bekavik bak Látur, tekur
svo við hver vikin af annari með hyrnum og
hamra-hliðum á milli, i kringum allan þenna kjálka og er hver
víkin annari lik; þeim hefir áður verið lýst að nokkru (bls.
96—98). Stórkostlegustu björgin liggja beggja megin við
Hafn-arbás, en inn af Kálfatindi verða björgin lægri. Landferðir
eru hér mjög örðugar og sjóferðir líka, þvi allar liggja
vikurnar fyrir opnu hafi og viðast er ilt með lendingar fyrir
björgum og brimi. Frá Hornbæ liggur
Almenninga-ska rð (826’) yfir bjargið til austurs og suðurs, og svo liggur
vegurinn inn með á bjargbrúninni um dalahvilftir suður að
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>