- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
235

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Húnavatnssysla.

235

sveitir ineð viðáttumiklum engjaflákum, mýrum og móum
og klappaholt innan um. Norður og austur af
Yesturhóps-vatni eru björg og hamrar, þar er meðal annara hæða
Borgarvirki (692’); fyrir utan Hóp er roksandur með
melhnausum, en fyrir sunnan og austan það eru engjar og
mýrlendi, fyrir austan Húnavatn austur að Blöndu eru melar
og hnullungagrjót, en svo holt og mýrar upp eftir. Upp
frá þessu láglendi gengur vestast Viðidalur, sem fláir út
upp að heiðum og er fullur af lausagrjóti. leir, möl og
ís-aldarruðningi, upp af honum ganga daladrög upp á hálendi.

Zugmeyer.

43. mynd. Vatnsdalshólai’.

A hálsunum austan við dalinn er Víðidalsfja 11 og er
norðan í þvi Asmundargnúpur og fleiri tindar, bak við
það liggur Gaflheiði. Þar fyrir austan er Vatnsdalur
djúpur dalur, fagur og grösugur. Vestan að Vatnsdal liggja
lágir hálsar, sem ganga útundan Viðidalsfjalli, en austan við
dalinn eru háar og brattar hamrahlíðar og heitir þar
Vatns-dalsfjall, það er lika mikið hærra en heiðarnar bak við.
fjallið skiftist eftir endilöngu af Sauðadal og lieitir
Svina-dalsfjall austan við hann, yzt á þvi er Reykjanybba
(2477’). Hálsar sem ganga suður af Svínadalsfjalli heita
Axlir, en Borgir þeir sem ganga suður af Vatnsdalsfjalli;

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0249.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free