Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
250
Austfirðir.
sandar marflatir, þar eru melhnausar i smátorfum hér og
hvar, en þegar dregur frá sjó fer gróðurinn að verða meiri
og sameinast í grassléttu, og er þar alstaðar ægisandur undir
jarðvegi, en þar fyrir ofan koma blágrvtisásar og klappaholt
með mýrasundum á milli. Selfljót rennur jafnhliða
Lagar-fljóti og i sjó syðst á Héraðssandi. Upp af láglendinu á
Uthéraði ganga alstaðar grýttir hálsar út undan
fjarðafjall-garðinum og eru þar mörg klettabelti og breiðir stallar en
heiðalönd á milli. Vegir liggja af Héraði niður i firðina
og eru þeirra merkastir og tiðfarnastir Fj arðarheiði (1992’)
og Yestd alsli eið i (1849’) til Seyðisfjarðar; niður i
Loð-mundarfjörð Hggur vegur sem heitir Tó, fremur illur
yfir-ferðar, og annar vegur um Sandaskörð niður i Borgar-
r
fjörð, þá er yzt á Uthéraði vegur um Göngu skörð (1326’)
niður i Njarðvik
Hinn mikli fjarðafjallgarður takmarkast sem fyr var
getið að vestan af Fljótsdalshéraði og Skriðdal svo langt
sem þeir dalir ná, en syðst er hann samanhangandi við
aðalhálendið norðaustur af Vatnajökli og Prándarjökli;
austur úr fjallgarðinum ganga fjökla margar háar
fjalla-álmur, tindaraðir og eggjar út á milli fjarðanna Höfðinn
Kögur, sunnan við Héraðsflóa, er nyrzti oddinn á
fjall-garði þessum, sem helst óslitinn og hérumbil jafnhár suður
undir Reyðarfjörð, en uppi hann ganga frá fjörðum og
vikum ótal dalaskvompur og botnar. Yzt, upp af Njarðvik,
heita Osf jöll, þar suður af eru Dyrfjöll (3606’), þau draga
nafn af djúpu skarði eða klofa, sem gengur þvers yfir þau
einsog hiið eða dyr; fjöll þessi eru mjög brött með
hrika-legum hamraveggjum, en í kring eru jökulfannir og urðir.
Nokkru sunnar, upp af Borgarfirði er Bein ageitar f j all
r
(3517’). Ur Njarðvík liggja fyrir múla tæpar götur í N j a
rð-vikurskriðum. Borgarfjörður er allstórt, hérað og
grösugt og há fjöll alt i kring,- en dalurinn breiður og langur;
austan við undirlendið eru skörðótt fjöll. sem kvislast mjög
sævarmegin, og ganga skörðóttar eggjar með örmjóum
vörp-um út á milli viknanna; fjöll þessi eru ljósleit og flest úr
liparíti, en vesturfjöllin við Borgarfjörð eru úr blágrýti.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>