- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
252

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

252

Austfirðir.

út úr honum ganga smádalir og liggja hinir dalirnir allir
hærra. og eru allhá þrep niður úr þeim að framan. Fvrir
mynni á Hraundal og þvers yfir undirlendið eru
urða-hraun mikil, sem ná upp að fjalli þvi er heitir Skúmhöttur.
Sunnan við Loðmundarfjörð eru há fjöll, sem enda með
Brimnes f jalli, yfir þau liggur Hjál mardalsheiði (2005’)
niður að Seyðisfirði Við Seyðisfjörð eru brött fjöll á báða
vegu og litið undirlendi nema dalkvosir með stöllum upp
að Vestdalsheiði og Fjarðarheiði, milli þeirra er
Bihóls-fjall (3203’) en sunnar Gagnheiða rhnúk ur (3009’), þar
má fara um Gagnheiði til Mjóafjarðar og er hryggurinn
sjálfur mjór, en hjaUar og stallar beggja megin,
fjallgarð-urinn milli fjarðanna er afarbrattur, og heita þar að utan
Dalafjöll og Húsgaflar, þverhnvptir fram i sjó. Við
Mjóa-fjörð er þvínær ekkert undirlendi nema hliðahallinn með
sjónum og litill dalbotn, snarbrött fjöll eru beggja megin og
yfir suðurfjallgarðinn er varla hægt að klöngrast nema fyrir
fótgangandi menn, helsta skarðið heitir Hólaskarð. Upp
af firðinum er Mjóaf jarða rheiði (17—1800’). í
Norð-firði er undirlendi allmikið þar ganga tveir dalir til suðurs
Seldalur og Oddsdalur, en Fannardalur inn af. Norðan við
fjörðinn eru snarbrött fjöll og á þeim Hoflaugartindur
(2934’) en Norðf j arðarnvpa múli yzt út í sjó. Uppi á
fjallgarðmum fyrir ofan dalabotna er hér jökuldyngja, sem

T

heitir Fönn Ur Norðtirði liggur vondur vegur með sjó i
Hellisfjörð og Viðfjörð utan í bröttum hlíðum, þar eru
Norðfjarðarskriður. Austan við Viðfjörð gengur fram
mjótt nes, sem heitir Barðsnes og eru vikur þar suður af,
en múlar fram i sjó (Gerpir, Snæfugl), siðan be^-gist ströndin
inn til Reyðarfjarðar. Reyðarfjörður er stærstur fjörður
evstra, og er allbreið undirlendisræma með honiun be^gja
megin, en smádalir skerast upp i fjöllin, þar er þvi mikil
bygð með firðinum. Upp frá botnum Eskifjarðar og
Reyðar-fjarðar eru ýmsir vegir um skörð i fjallgarðinum, en háir
fjallahryggir á milli, þaðan liggja vegir um
Eskifjarðar-heiði, Fagrada 1 og V órdalsheiði. Fagridalur er djúpur
og sker fjallgarðinn sundur. Milli Eskifjarðar og Revðar-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0266.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free