- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
296

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

296

Fl.jót og ár.

hún er aðeins fjórðungnr milu á lengd, en mjög vatnsmikil,
og rennur i djúpum farvegi til sævar. Farvegurinn milli
bakka er 1500 álnir á breidd, en vanalega fellur áin ekki
um allan farveginn, en rennur í stokk með vesturbakka
og er þar djúp, en varla meira en 2—300 álnir á breidd.
Ain breytir þó stundum farvegi og fiæðir yfir stór svæði.
Þegar hún rennur þröngt verður vanalega að fara á jökli
fyrir ofan uppgönguaugað og heitir það að »fara á
undir-varpi«. Jökulsá er hm langstyzta stórá á Islandi, en
hættu-leg að riða sökum vatnsmegnis, sandbleytu, þyngdar og
straumhörku.1) A Breiðamerkursandi eru margar aðrar
jökulár og kvislar, sem breytast ár frá ári. Fyrir austan
Jökulsá er Veðurá, Brennhólakvisl. Eystri og
Vestri-Stemma, en vestar á sandinum er Breiðá (Breiðuvötn),
Fjallsá og Deildá, og renna ár þessar oft margvíslega
saman. Pær koma allar úr Breiðamerkurjökli. Margar af
ám þessum hafa langar rásir undir jökli, áður en þær koma
fram á sandana.

Vestast á Breiðamerkursandi renna niður vatnsmiklar
kvislar úr skriðjökultöngunum austan á Oræfajökli, þar er
Hrútá, Kviá Eyrstri og KviáVestri, en sunnan undan
Oræfajökli koma Hólá og Stigá og mikil vatnsföll renna
þaðan að vestanverðu um Oræfasveit niður i Skeiðará; þar
eru helztar Kotá, Virkisár (eystri og vestri), Svinafellsá
og Skaftafellsá, og eru hinar tvær siðastnefndu
lang-vatnsmestar. Allar koma ár þessar undan skriðjökulstöngum
og stundiun hafa komið mikil hlaup i þær, sem þó hafa
verið stórkostlegust þegar Öræfajökull hefir gosið;
bygða-vötn þessi eru oft ill yfirferðar, ströng og stórsteinótt.

Undan Skeiðarárjökli falla mörg vötn til sævar, þau
flæða yfir mikinn hluta af sandinum i ótal kvislum, sem
breytast si og æ, renna sundur og saman og stiflast i stór
uppistöðulón, sem hafa marga ósa gegnum malarkambinn.
Stærstu vatnsrásirnar koma undan yztu hornunum á Skeið-

f. Th. Ferð um Austur-Skaftafellssýsla og Múlasýslur 1894
(Andvari XX, bls. 33-36).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0310.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free