Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
318
Fl.jót og ár.
uppsprettum, kvíslum og smávötnum við Hallmundarhraun
og norðurendann á Balljökli og liggja að þvi margar
rásh-af heiðunum og frá jöklinum, svo það vex oft ákafiega í
leysingum. Hvitá hefir skorið sér gljúfur i hraunið, sem
hún rennur eftir hjá Barnafossbrú, en neðar breikkar hún
og verða að henni háir leirbakkar og melar, þó rennur hún
aftur þröngt hjá Kljáfossi (Kláffossi) neðst i Hvitársiðu,
og þar er lika brú yfir ána. Eftir það slær Hvitá sér út
og er orðin mikið iijót með þungum straumi og kvíslast
litið svo fá vöð eru á henni; aðalvaðið er nú Langhoitsvað.,
nærri mynninu á Pverá. Hjá Stafholtsey hefir Hvitá breytt
farvegi á seinni öldum, rann áður fyrir sunnan bæinn og
sést farvegurinn enn. Að sunnanverðu renna i Hvitá á
láglendinu þrjár stórar ár, efst Reykjadalsá, hún rennur
i mörgum hlykkjum eftir botninum á Reykholtsdal. þá
Flókadalsá (Flóka), sem kemur ofan af hálendi og rennur
um Flókadal sunnanverðan, en melaholt skilja dæld hennar
frá Geirsá, sem fellur niður i Reykjadalsá, og eru gljúfur
og fossar í dalmynninu i báðum ánum. Vk fellur Grímsá
i Hvitá skamt fyrir ofan Hvitárvelli, það er vatnsmikil á,
sem kemur úr Reyðarvatni suður af Oki, og rennur niður
Lundareykjadal. Að norðanverðu falla Pverá og Norðurá
í Hvítá og eru báðar vatnsmiklar. Fverá kemur úr
vötn-um á Tvidægru og heitir fyrst Kjarrá, siðan Ornólfsdalsá,
en Pverá neðst. Norðurá kemur upp á Holtavörðuheiði
og renna i hana margar smáár, svo hún er orðin mikið
vatnsfall neðan til. I Norðurárdal er áin lygn og rennur i
kvislum kringum Desey, en er hún brvzt gegnum bergliaftið
i mynni dalsins eru i henni hávaðar og fossar, svo verður
hún aftur lygnari og dýpri og er þar neðst skipgeng (upp
að Munaðarnesi). Rétt fyrir ofan ármótin rennur G1 júfurá
i Norðurá, hún kvislast útúr Langá hið efra. Pegar allar
þessar ár eru komnar saman er Hvitá orðið mikið fljót. sem
vel væri fært stórum skipum ef þau kæmist inn fjörðinn,
en áin hefir borið mikinn leir þangað, svo fjörðurinn er
mjög grunnur og verður að sæta sævarföllum til þess að
komast upp i’ána. Fyrir neðan Grimsá er Hvitá talin 100
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>