Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
t
Ar í Húnavatussýslu.
323
Langstærsta vatnsfallið i Húnavatnssýsln er Blanda,
það er jökulá 15 milur á lengd, hún kemur undan
Hofs-jökli að norðvestan, en i hana falla lika kvislar frá
Lang-jökli. Blanda er þegar á fjöllum mikil á, rennur hún þar
nm tilbreytingarlausar hásléttur og heitir þar
Eyvindar-staðaheiði að austan. en Kúluheiði að vestan, en loks fellur
hún um mikil gljúfur niður i Blöndudal. Fyrir neðan dalinn
rennur Svartá saman við Blöndu, það er vatnsmikil
berg-vatnsá, 9 milur á lengd, hún kemur lika ofan af hálendi og
myndast þar af uppsprettum og afrensli stöðuvatna. Siðan
rennur Blanda niður Langadal og fellur út i Húnafjörð hjá
D. Bruun.
57. mvnd. Blanda á Fjöllum.
verzlunarstaðnum Blönduós, þar er járnbrú yfir ána. Mílu
vegar fyrir norðan Blönduós rennur Laxá til sævar, hún
kemur niður Laxárdal. A skaganum milli Húnaflóa og
Skagafjarðar renna margar smáár vestur og austur, en engar
þeirra eru vatnsmiklar. Stærsta áin að austanverðu heitir
lika Laxá og rennur um Laxárdal vestan við
Tindastóls-fjöllin norðaustur í Skagafjörð, en Gönguskarðaá rennur
fyrir sunnan hin sömu fjöll til austurs út i suðvesturhorn
Skagafjarðar, þá kemur Sæmundará upp i ATatnsskarði,
rennur út með Sæmundarhlíð og i Miklavatn.
I botn Skagafjarðar falla Héraðsvötn i tveim ósum
beggja megin við Hegranes, það er mikið vatnsfall með
21*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>