- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
329

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Jökulsá á Fjöllum.

829

Laxá í djúpar kvislar hjá Laxamýri með varphólmum og
Æðarfossum. A Tjörnesi falla ýmsar smáár vestur og má
helzt nefna Skeifá með laglegum fossi.

ÍVinær alt það vatn, sem fellur út i Axarfjörð, safnast
i eina mikla móðu, Jökulsá á Fjöllum (eða i Axariirði),
það er ein af helztu stórám landsins, sprettur upp i
Vatna-jökli, er 25 milur á lengd og rennur um jafnhallandi
öræfa-flatneskjur og óbygðir, unz hún fellur niður i gljúfrin fyrir
neðan Dettifoss. Jökulsá kemur upp i krikaniun milli
Kverk-fjalla og Dyngjujökuls, 2500 fet vfir sæ, og er þar þegar
vatnsmikil; nokkru neðar á söndunum falla i hana
smá-kvislir undan Dyngjujökli; fellur hún á einum stað hjá
Kverklmúkarana i kvislum og þar er eina vaðið á henni
milli fjalls og fjöru, þó hafa líklega verið vöð á Jökulsá til
forna.1) Siðan fellur Jökulsá norður og lítið eitt vestur
á við, en rekur sig á fjallsbungu þá, sem heitir Vaðalda,
og beygir þá austur á bóginn; þar fellur i hana Svartá,
stutt en vatnsmikil bergvatnskvisl. A vorin i leysingum
falla að öllum likindum kvislar úr Dyngjuvatni i Jökulsá
fyrh’ norðan Vaðöldu. A móts við Herðubreið og þó heldur
norðar fellur Kreppa i ána, er það mikið vatnsfall,
hórum-bil eins stórt og Jökulsá sjálf, hún er 10 milur á lengd, og
kemur undan vestanverðum Brúarjökli, austan við
Kverk-fjöll, og rennur Kverká, undan sama jökli, í hana þar efra.
Hjá Hvannalindum rennur Kreppa i mörgrnn kvislum á
leirum og aurum, og er þar vað á henni, þó ilt sé sakir
sandbleytu. Norður af Herðubreið renna vestan i Jökulsá
Lindaá og Grafarlandaá, þær myndast af uppsprettiun
undan hraunum og renna sin hvoru megin við Ferjufjall út
í Jökulsá, að austanverðu rennur i hana Skarðsá af Möðru-

í Ljósvetningasögu (Rvík. 1896 kap. 10, bls. 29) segir, að
for-steinn Síðu-Hallsson og austanmenn hafi riðið 3rfir Jökulsá, „en þá
voru góð vöð á ánni" segir sagan; þetta var snemma á 11. öld. A
miðri 10. öld fór þó Sámur á Leikskálum á ferju yfir Jökulsá
(Hrafn-kelssaga. Rvík. 1893, kap. 20, bls. 38), og í Reykdælu (Rvík. 1897,
kap. 5, bls. 17) er getið um ferju bjá Akurhöfða í Axarfirði (rétt hjá
Ferjubakka) á 10. öld.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0343.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free