- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
345

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Votn á Reykjanesskaga.

345

Sunnan í Pingvallavatn rennur Ölvesvatnsá og nokkrir
smá-lækir aðrir, en vatnsmegin Sogsins er svo mikið, að það
hlýtur að vera uppsprettuvatnið, sem heldur á jafnvægi.
Einsog kunnugt er, er Pingvallavatn talið eitt hið mesta
veiðivatn,1) og er talið að þar veiðist i meðaiári 70 þúsundir
smárra og stórra silunga,2) og er veiði stunduð frá 17 bæjum.
Eftir að Sog fellur úr f’ingvallavatni rennur það gegnum
tvö vötn, fyrst gegnum Ulfljótsvatn, það er litið, en
alldjúpt, kvað vera 30 faðmar, i þvi er töluverð veiði, siðan
gegnum Alftavatn, sem er tiltölulega grunn breikka á
Soginu, og er riðið yfir það um sléttan leirbotn, og er vatnið
vanalega á miðjar siður.

A Reykjanesskaga er lítið um stöðuvötn og eru varla
önnur teljandi en Hliðarvatn i Selvogi og Kleifavatn norður
af Krisuvik. Hliðarvatn liggur undir hamrahliðum á
sléttlendi við sjó, sandrif er fyrir framan það og fellur sjór
inn í vatnið um ós hjá Vogsósum, en i útsynningum skefur
sandinn svo upp af grandanum, að ósinn fyllir, svo þar
verður þurt; vatnið er þvi altaf að grynka að framanverðu
og að austanverðu, en vestanmegin etur það sig altaf meir
og meir inn i hraunið; tveir hólmar kvað hafa verið i þvi,
sem nú eru horfnir. I vatninu er nokkur silungsveiði.
Kleifavatn liggur i kvos milli Lönguhliðar og
Sveiflu-háls, menn þykjast hafa tekið eftir þvi, að vatnið vex og
þverrar á vixl, og jafnvel mest, þegar þurkar ganga, að því
er menn segja; i þvi er engm veiði, engin branda nema
hornsili. A 18. öld gengu munnmæli um, að þar hefði áður
verið mikil silungsveiði, en menn þorðu þá ekki að reyna

Um fiskiveiðar og dýralíf í vatninu hefur Bjarni Sœmundsson
ritað í Andvara 1897, bls. 99—101; 1904, bls. 89-102 og Feddersen
í Andvara 1885, bls. 137—138. Um smáverulíf vatnsins, rek (planktonl
o. ti. hafa þeir ritað C. H. Ostenfeld og C. Wesenberg-Lund: A
Regu-lar Fortnightly Exploration of the Plankton of the two Icelandic
Lakes, Thingvallavatn and Myvatn (Proceedings of the Royal Society
of Edinburgh Session 1904-1905. Vol. XXV. Part 12. Edinburgh
1906, bls. 1092-1167).

2) Andvari 1904, bls. 100.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0359.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free