Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Vötn á Vestfjörðum.
351
vatns og fjarðar er berghaft mjótt með malarhjöllum ofan á
og rennur allvatnsmikil á með fossum yfir berghaftið til
sævar. Beggja megin við Látrabjarg eru vogar og vaðlar,
sem sjór fellur í, en fá eru þar eiginleg stöðuvötn. A
Látrabjargi eru nokkrar smátjarnir og Látravatn upp af
Látravík. þá er Vatnsdalsvatn við Patreksfjörð,
Sauð-1 auksda 1 svatn hjáSauðlauksdal,Stóravatn upp af
Skorar-hlíðum, austur af Rauðasandi, og nokkur fleiri smávötn. I
vesturfjörðum eru lika fá vötn, helzt mætti nefna
Syðra-dalsvatn i Bolungarvik, Laugardalsvatn i Ogursveit,
Staðarvatn i Aðalvik, og Fljótavatn, sem sjór fellur
upp i; þessi vötn eru öll grunn og hafa auðsjáanlega áður
verið vikurbotnar, sem hafa skilist frá sjó. A heiðinni milli
Steingrimsfjarðar og Bjarnafjarðar eru mörg smávötn og
tjarnir (yfir 20) i lautum milli blágrýtisholta, stærst þeirra
eru Urriðavötn upp af Kleifum og Bæjarvötn norður
af Bæjarfelli. Pá er Þyrilsvallavatn allstórt og djúpt
sunnanfjarðar og rennur úr þvi i Yiðidalsá.
A Norðurlandi eru mörg vötn og sum stór, bæði nærri
sjó og uppi til dala og fjalla. I Húnavatnssyslu safnast
flest stórvötnin að undirlendinu fyrir botni Húnafjarðar.
Vesturhópsvatn er um milu á lengd og fjórðungur mílu
t
á breidd og liggur i blágrýtisdæld frá norðri til suðurs. I
það rennur Reyðarlækur úr vatni á Miðfjarðarhálsi, en úr
því rennur Faxalækur út i Viðidalsá. Það kvað vera 20
faðma djúpt norðan til, en ekki nema 6—8 faðmar að sunnan;
það er gott veiðivatn. Norður af þvi er Sigriðarstað
a-vatn, langt og mjótt, og úr þvi ós til sævar. Sunnan í það
rennurHólaá; austan með vatninu er sandurmeð melþúfum,
en þá taka við hamraholt úr blágrýti, sem heita Björgin og
ná upp að Vesturliópsvatni. Beint fyrir Fingeyrasandi,
austur af þessum vötnum er Miðhóp, nærri
ferhvrnings-míla á stærð, en tiltölulega grunt (5—8 faðmar), úr því
rennur Bjargaós til sævar vestan við Pingeyrasand, en
sand-urinn er allbreiður og skilur vatnið frá sjó. Silungsveiði er
tiltölulega litil i Miðhópi. en laxveiði góð i ósnum. Austur
af Hópinu er Húnavatn, mjótt vatn en grunt, en hálf mila
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>