Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
84-4
Stöðuvötn. 374
við Grrænafjall, sem liggur upp af lóninu, ganga skriðjöklar
út i lónið, i vatninu er þvi fjöldi af syndandi jökum, sem
losna úr jökulhömrunum. A Borgarhafnarheiði (900’) eru
þrjú smávötn (Fremstavatn, Miðvatn og Instavatn) úr þeim
rennur i Staðará.
í Yestur-Skaftafellssýslu eru stöðuvötnin miklu fleiri,
sérstaklega uppi á afréttum, i bygðum eru aðeins tjarnir
hér og hvar. A Síðu er Pórutjörn á heiðimii fyrir ofan
Foss, og Systravatn er uppi á fjallinu fyrir ofan
Kirkju-bæjarklaustur. I Landbroti eru viða tjarnir og smápollar
fram með hraunbrúninni, þar má nefna Hæðagarðsvatn,
Tunguvötn, Yikurflóð og svo uppistöðulónm hjá
Steins-mýri og i Eldvatnsbotnum. Pá er Holtslón, sem
mynd-aðist við Skaftáreldmn 1783 af stíflun Skaftár, það er nú
að minka og grynka af árburði. I Alftaveri eru nokkur
smávötn, þar eru H er j ólf sstað avatn (samanhangandi við
Holtsvatn) og Mjóásvatn stærst. I Mýrdal er
Heiðar-vatn (229’) á Arnarstakksheiði stærst, fjórðungur milu á
lengd og 20 f. á dýpt, þá er Gæsavatn (1469’) i djúpri
lægð hátt uppi til fjalla þaðan i norðvestur,
enOddnýjar-tjörn (293’) niðri i bygð, á Steigarhálsi. Uppi á afréttum
eru allmörg vötn, þó eru þau flest smá á hinum eystri
heiðum austan Skaftár. A Siðumannaafrótti eruKriuvötn
milli Blængs og Miklafells og Brunavötn smátjarnir þar
norður i hraunum. Pá eru Skaftárlón sunnan með
Fögru-fjöllum, stór og löng uppistöðuflóð úr ánni með skerjum og
eyjum. 3?á eru i Ulfardalsskerjum tvö vötn, Lambavatn
og Vikravatn.
Fyrir vestan Skaftá, á Skaftártunguafrétti eru
Alfta-vötn (1479’), smátjarnir milli Bláfjalls og Svartahnúksfjalla
með hraunbotni og graslendi i kring, og Hólmsárvötn
þrjú vestan við Svartahnúksfjöll. Langstærsta vatnið á
þessu svæði er Langisjór (2136’), það er jökulvatn milli
móbergsfjalla þrjár milur á lengd, en ekki nema fjórðungur
milu eða minna á breidd. Yatnið er fjöllum lukt á báða
vegu, fyllir dalmn milli Grænufjalla og Fögrufjalla, og
gengur frá suðvestri til norðausturs alveg upp i jökul.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>