Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
42
J ökl ar.
svört og sundurtætt af sprungum og gjám, og ískambar og
strvtur á milli, strýturnar eru sumar hundrað fet á hæð
og allar þaktar af þykku aurlagi og er stórgrýti stráð um
þær. Austar er jökullinn flatari, þar eru strýturnar lægri,
en nóg er samt af þeim, skiftast þar líka á sprungur, strýt-
ur og kambar; leir, möl og stórgrýti er ofan á ísnum, en
þegar sólin hækkar á lofti, kemur Kf og hreyfing i alt þetta,
sem frosið hefir verið á nóttunni. i hverri dæld safnast sam-
an guhnórauðir forarpollar, leirinn verður að graut og renn-
ur niður á við, alstaðar sitrar vatnið fram og fellur i smá-
fossum niður í sprungurnar og holurnar. Fram með jökul-
röndinni, sem er 4 milur á lengd, eru smáar hólaþyrpingar
og ölduhryggir og um þá stráð stóreflis grágrýtisbjörgum;
18^4 var jökulröndin að kippast nokkuð til baka og grjótið
var að koma fram, sem hnoðað var inn i ísinn. Grjót þetta
hefir jökullinn að öllum likindum losað úr berginu, sem
t
undir honum Hggur, þvi hvergi standa tindar uppúr.
Otelj-andi gulmórauðir lækir bera leirinn út á sandana, svo
yfir-borð þeirra er alstaðar leirkent, norður undir Vaðöldu; þar
safnast vatnið líka saman i stóran uppistöðupoll
(Dyngju-vatn), fvrir sunnan Dyngjufjöll. Undir söndunum mun
við-ast vera gamalt hraun og kemur það sumstaðar fram, en
nýrra hraun (Holuhraun) kemur út undan miðri rönd
Dyngju-jökuls. Undan austurhorni Dyngjujnkuls, i króknum við
Ivverkfjöll, eru uppsprettur Jökulsár i Axarfirði, flæðir hún
þar stundum yfir sandana og hraunin og flytur með sér
möl og urð Niður um klofann á Kverkfjöllum kemur
dálitill skriðjökull niður undir Jökulsá, endi hans er á að
gizka 2500 fet yfir sjó og beygist dálítið til vesturs.
Vest-an við klofann er hátt uppi gígahrúga og stóðu upp þaðan
gufumekkir 1884 og brennisteinsfýlu lagði niður á sandana.
Stundum hafa hlaup mikil komið i Jökulsá og er það ekki
ólík-legt. að hin staérri þeirra að minsta kosti liafi orsakast af gosum
á þessum stað. því ef gígir þessir gjósa, hlýtur skriðjökullinn í
klofanum aö bráðna og renna niður i ána. 1717 segja
ann-álar að gosið liafi nærri uppsprettum Jökulsár, þá var
ösku-fall mikið um mestalt Norðurland, Jökulsá hljóp og bar
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>