- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
44

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

u

Jöklar.

hálendið, þab er heljarmikill skriðjökull, sem nær alla leið
frá Kverkfjöllum vestur að Pjófahnúkum, og mun
jökulrönd-in vera rúmar 6 milur á lengd; flatarmál jökulsins hlytur
að vera 8—9 ferh.milur eða meir, en örðugt er að segja
það með vissu. Uppi á Yatnajökli sést á þessu svæði hvergi
i dökkan dil, þar eru eintómar fiatar hjarnbreiður, áður en
hjarnið fer að breytast i jökulis og hin fyrstu drög hinna
stóru skriðjökla taka að myndast. Brúarjökull er fremur
lág-ur hið neðra og er hallalitill langt upp eftir; að framan er
jökullinn mjög óhreinn, en fremur litið sprunginn; litlar eða

F. W. Howell.

64. mynd. Frá rönd Brúarjökuls.

engar jökulöldur voru fyrir framan liann 1894, líklega hefir
hann verið genginn fram á þær, þvi siðan 1889 hefir verið
töluverður »gangur« i þessum jökli, einsog vér fyr
höf-um getið. Brúarjökull hefir oft verið ókyr; stundum
hefir mikið þiðnað framan af lionum, stundum hefir hann
gengið langt fram. Pegar Sveinn Pálsson kom upp að
Snæ-felli 1794, var Brúarjökull tiltölulega litill, svo að oOU
faðm-ar voru frá jökulröndinni að öldunum, en 1730 náði
jökull-inn fram á öldur; 1810 gekk Brúarjökull aftur fram, fór svo

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0056.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free