- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
50

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

50

Jöklar.

vötn koma út á samskeytum jöklanna. Endi hins vestra
Heinabergsjökuls liggur 156 fet yfir sjó, úr honum miðjam
kemur Kolgrima. Jöklar þeir, sem nú hafa verið taldir, eru
einu nafni kallaðir Mýrajöklar.

I Suðursveit eru jöklarnir fjær sjó. Fjallamúlarnir eru
svo háir fyrir ofan sveitina, að þeir spyrna móti jöklunum,
svo aðeins smáir skriðjökulsangar ná niður i dalbotnana.
Austan til i botni Staðardals gengur niður skriðjökull
ein-kennilega lagaður og gengur mjó álma úr horni hans langt
niður i hlið, jökull þessi er kallaður Brókarjökull, úr
honum rennur Staðará; jökull þessi er brattur og fellur á
fjórðung milu frá 1700 feta hæð niður að 200 fetum yfir sjó
og er neðsta totan mjög mjó. Jökull þessi er þó ekki
sjálf-stæður, hann er kvísl úr hinum vestri Heinabergsjökli, bak
við Skálafellshnútu. Niður i botninn á Kálfafellsdal
gengur Steinaj ökull, hann er mjór, aðeins 200 faðmar á
breidd þar sem hann kemur niður i dalbotninn, en neðsti
sporðurinn breikkar nokkuð, endi hans er 637 fet yfir sjó;
úr þessum jökli koma Steinavötn, sem efst kallast Miðvötn
eða Landkvisl.

Uppiáhinu mikla fjall-lendimilli Kálfafellsdals og Breiða-

merkurjökuls eru, i kringum Pverártind (4953’) og í’ver-

ártindseggjar, miklar hjarnbreiður, sem eru einsog sjálf-

stæður jökull, þó þær að norðan hangi saman við hájökul-

t

inn, en slakki allmikill (Veðurárdalur nyrðri) er á milli. Ut
frá ÍVerártindsjöklinum, sem skiftist i ýmsar fannbreiður af
hvössum eggjum og tindum, ganga þrir eða fjórir litlir
skrið-jöklar; hinn austasti þeirra gengur niður um litinn þverdal
vestur i Kálfafellsdal, jökultangi þessi nær niður að 688 feta
hæð yfir sjó, hann er mjög brattur, og úr honum rennur
kvisl i Steinavötn. f*á gengur annar skriðjökull beint
suð-ur frá Þverártindseggjum, sem kalla mætti Fellsjökul,
hann er mjög brattur, 1500 faðmar á lengd og 3—400
faðm-ar á breidd, endi hans er 1430 fet yfir sjó, úr honum
kem-ur Fellsá, sem rennur i Reynivallaós. Þá gengur þriðji
jökullinn vestur i Veðurárdal syðri, hann liggur lika hátt
og mætir kvisl úr Breiðamerkurjökli á 16—1700 feta hæð

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0062.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free