Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Breiðamerkurjökull.
53
ar mikill hluti af vatnsmegni Jökulsár stundum á vorin
hleypur i hana, liklega af þvi það getur ekki fengið
fram-rás alla leið fram úr jöklinum; þesskonar hlaup úr Yeðurá,
i sambandi við jökulgang af vatnsbelgingu. tók af Fellsbæ-
r
inn 1869, eins og fyr var getið. Ur austurhluta
Breiða-merkiu-jökuls koma, auk þessara áa, tvær aðrar breytilegar
jökulkvislar, Eystri-Stemma og Vestri-Stemma. Við
upp-tök Brennhólakvislar er kúpa mikil i jökulröndinni og
þeg-ar gangur er í jöklinum, koma þar miklar sprungur, af því
þar eru blágrýtishnúðar undir, sem hétu Brenuhólar, en
jökullinn gekk yfir þá 1794. Við lok 18. aldar rann engin
kvísl nema Veðurá úr austurbarði jökulsins, hinar þrjár
hafa myndast siðan.
Milli Eystri- og Vestri- Stemmu gekk jökullinn 1894
næst sjó, þar var jökulölduröð kippkorn frá jökulröndinni
og litil uppistöðulón og pollar af jökulvatni milli hólanna
og jökulsins; hólar þessir eru kallaðir Fellsliólar; frá
jökul-öldum voru þá 113 faðmar að flæðarmáli og þaðan aftur
að sjálfri jökulröndinni 23 faðmar; siðan hefir jökulendinn
kippst dálitið aftur. Hérimibil fjórðung mílu frá
Vestri-Stemmu rennur Jökulsá i djúpum farveg til sævar og
við-lika langt fyrir vestan hana er annar farvegur, sem hún
rann í 1892; i botni farvegs þessa eru margar holur og
bollar eftir klakastykki, sem þar hafa bráðnað á aurunum.
Par uppaf eru afarbreiðar aurrákir og grjótrandir uppeftir
jöklinum, ná þær upp eftir öllum miðjökli, upp fyrir
Esju-fjöll og eru 2—3 mílur á lengd.
Alla leið frá Fellsfjalli vestur að Kviskerjum
takmark-ast hinir sléttu sandar af óslitnum skriðjöklum; hvergi
kem-ur fell eða múli fram að söndunum; ekki er þetta þó einn
jökull alt saman, það er sambræðsla margra jökla, koma
þeir niður lægðir i hálendisröndinni og sameinast, er niður
kemur; fjöll uppi i jöklinum skilja isstraumana hvern frá
öðrum og svo má sjá samskeytin á aurrákum þeim, sem
ganga þvert upp jökulinn á takmörkunum.
Breiðamerkur-jökull nær frá Fellsmúla og Veðurárdal að austan vestur
að Máfabygðum og Breiðamerkurfjalli. Frá hájöklinum er
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>