- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
58

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

58

Jöklai-.

standa þó hér og hvar mjóar eggjar íslausar og smá
kletta-sker, að austan einkum upp af Ærfjalli og Kvískersmúla,
en að vestanverðu ganga eggjar og klettaröðlar frá
Hvanna-dalshnúk niður á Svinafellsheiði. Sveinn Pálsson gekk
fyrstur upp á Öræfajökul, 11. ágúst 1794, hann fór frá
Kvi-skerjum upp á Knapp,1) en liinn 19. júlí 1813 gekk Hans
Frisak upp á Hvannadalshnúk2) og þangað komst honum
næstur Englendingurinn F. ~W. Howell 1891. Aðalefni
Öræfajökuls er móberg, kemur það alstaðar fram i
hliðar-múlum og undirfjöllum jökulsins, i suðausturhorninu er
tölu-vert af lipariti; undirhliðar jökulsins eru allar
sundurskorn-ar af dölum, kvosum og giljum i einstök fell og múla.

Frá Öræfajökli og hrygg þeim, sem tengir hann við
Vatnajökul, ganga niður fjórtán smáir og stórir skriðjöklar.
Nyrztu skriðjöklarnir að austanverðu eru Hrútárjöklar
tveir, sem gauga niður beggja megin við Ærfjall, bráðna
saman fyrir neðan það og ganga svo norðar og austar
sam-an við vesturhorn Breiðamerkurjökuls, fyrir neðan
Breiða-merkurfjall. Pannig verður fram með öllum
Breiðamerkur-sandi samanhangandi 4 milna löng jökulrönd. Hrútárjöklar
eru nærri hálf önnur íníla á lengd, hinn eystri (eða nyrðri),
sem kemur niður milli Breiðamerkurfjalls og Ærfjalls er
nokkuð breiðari en hinn, þriðjungur úr milu, en hinn vestri.
milli Ærfjalls og Kviskersmúla, fjórðungur milu; hin
sameig-inlega rönd þeirra, frá Kvískersmúla að jökulvikinu við
Breiðamerkurfjall, er míla á lengd. Neðsta jökulbugðan
var 1904 aðeins 76 fet yfir sjó; sumarið 1894 var gangur
nokkur i jöklum þessum, svo þeir voru komnir fram á
öld-ur, þeir voru mjög sprungnir að framan með ótal eggjum
og nybbum. Undan Eystra Hrútárjökli kemur Fjallsá,
und-an hinum vestra Hrútá, meðaljökulkvísl, en Sveinn Pálsson
getur þess, að hún 1794 hafi verið vatnsmest á á
Breiða-merkursandi, næst Jökulsá.

Milli Hrútárjökuls vestri og Kvíárjökuls gengur t’jall-

l) Landfræftissaga III. bls. 162—163.

*) s. st. III. bls. 279.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0070.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free