Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Skeiðarárjökull.
63
ur. Jökullinn hefir sigið niður á sandinn einsog seig leðja
og líkisfc tilsýndar i heild sinni risavaxinni köku úr
dökk-gráu deigi, en fremst likist hann hrauni, svo ósléttur er hann
og þakinn aur og gi’jóti. Flatarmál jökulsins mun vera
ná-lægt 4 ferh. mílum. Undan jöklinum renna, eins og fyr
hefir verið getið, tvö stór jökulvötn, Súla að vestan, Skeiðará
að austan og auk þess fjöldi af smákvislum, mjög
breyti-legum, en mikið vatn sigur i sandinn og kemur aftur fram
neðarlega á honum. Af kvislum á sandinum, sem spretta
beinlínis upp i jökulrönd, má nefna Sigurðarfitjarála,
vestan við miðjan jökul, Sandgigsk visl og Blautukvisl,
sem rennur i Núpsvötn. Vestasta barð jökulsins gengur
svo nærri fjöllum, upp af Lómagnúpi, að ekki var 1904
nema 1200 álna bil milli hans og klettanna niður af
Hvirfils-dal, en hæðin var 300 fet yfir sjó; frá austurhorni var
rúm-ur þriðjungur milu að hliðunum norður af Skaftafelli og
380 feta hæð yfir sjó; yzti oddi jökulsins var þá 4x/3 mílu
frá sjó og 268 fet yfir flæðarmáli. Jökulkakan þykknar
smátt og smátt upp eftir og hækkar miklu meira en
sand-urinn, sem hún liggur á. Skömmu eftir að jökullinn er
kominn niður á láglendið, mun þykt hans, milli Jökulfells
og Súlutinda, vera 37fir 1000 fet. Öldurnar fyrir framan
jök-ulinn eru mismunandi stórar og margar, eftir árum, gangi
í jöklinum og hlaupum; 1904 var ein stór hólaröð fram
með jökulröndinni, alt austur á Háöldu, 3—700 álnir frá
henni. og voru öldurnar 50—100 feta háar yfir sandinn.
Vestan til er gamall jökulgarður á kafla, fjórð’ung mílu frá
jökulrönd, þar heitir Sandgigur. Arið 1881 talar Helland
um tvo jökulgarða og á liklega við þessa hina sömu, en
1857 nefnir Otto Torell fjóra öldugarða. Austan við miðja
jökulröndina er Háalda. 402 fet yfir sjó, rúm 100 fet yfir
sandinn í kring, þar fyrir austan var jökullinn 1904 genginn
út á öldur, enda hefir mestur gangur verið í austurparti
jökulsins i seinni tið. Mílu fyrir austan Háöldu er vik mikið
i jökulröndina, þar kom hlaupið 1892 og hlaupið 1903 nokkru
vestar. Stærð jökulsins á sandinum hefir verið breytileg. Arið
1857 var hliðið milli Selaxlar, norður af Lómagnúp, og jökul-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>