Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
66
Jöklai-.
um allstórir hjarnskaílar i botnum innanum tindakransa. ná
þeir alstaðar lengra niður þeim megin sem veit að sjó; hvað
skaflar ná þar langt niður á sumrum er mjög breytilegt
eftir árferði.
/
A hinni háu fjallatungu. sem gengur norður úr aðal-,
hálendinu milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar, eru viða jöklar,
þó ekki séu þeir stórir, en þeir mega heita ókannaðir enn.
Fjöll þessi eru mjög sundurskorin af dölum og gljúfrum.
svo miklir hjarnfletir hafa eigi getað myndast, jöklarnir eru
flestir samsafu af botnafönnum og standa upp úr þeim margir
tindar og eggjar. en skriðjökulstangar teygja sig sumstaðar
niður i gljúfrin i kring. I hinum háu fjöllum, suður og
vestur af Akureyri, eru töluverðar jökulmyndanir, einkum
vestan við Glerárdal, þar er Vindheimajökull (4672’),
upp úr hjarnfönnum jökuls þessa eru hæstu tindarnir Kista
og Strýta, þaðan rennur Bægisá um krappan og klungróttan
dal, þar eru skriðjökulsmyndanir á hjarnfönnum efst i
gljúfr-unum og er sagt að jökulblaup hafi komið í Bægisá 1801,
svo jökullitur var á ánni alt sumarið. Bæði við Eyjafjörð
og Yxnadal eru hjarnskaflar i djúpum fjallabotnum og það
sumum æði neðarlega, þar sem skjól er undan sólu; þannig
r
eru stórir skafiar kringum Hraunsvatn i Yxnadal og i
Ulfars-skál i Eyjafirði.
Mestir eru jöklarnir á eggjum og fjallahryggjum milli
Hörgárdals og Svarfaðardals, hjarnbreiður liggja þar i röð
norður eftir og ganga dalir inn af þeim beggja megin, með
ýmsum afdölum, að vestan Unadalur, Deildardalur, Kolku-
dalur og Hjaltadalur, að austan Svarfaðardalur, Barkár-
dalur og Myrkárdalur. Syðst er Myrkárjökull, hann er
litill og gengur úr honum skriðjökulstangi niður i Héðins-
dal, afdal úr Hjaltadal. Pá kemur Túnahryggsjök ull,
hann nær austur frá Barkárdal vestur undir Héðinsdal og
skilur fjallshryggur hann frá Myrkárjökli, en til norðurs
f
nær hann að Heljardalsheiði við Svarfaðardal. Ur
Túna-hryggsjökli ganga fjórir skriðjöklar, einn niður i
Gljúfrár-dal, sem gengur út úr Skiðadal, annar i Barkárdal og tveir
i Kolkudal, beggjamegin við Túnahrygg; margir hryggir
aðrir og eggjar standa upp úr jökli þessum. Norðvestur af
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>