Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
70
EldfjölL.
ásamt hverum og laugum, í hálfhring eða boga kringum
Faxaflóa.
Menn hugsa sér oftast, að eldgos hljóti að koma úr
háum, strýtumynduðum fjöllum, þvi hin stærstu eldfjöll eru
þannig löguð, og ur gig eða skál á efsta tindi kastast aska
og gjall með eldflugi og brennisteinssvælu, en hraun flæða
út á alla vegu. A Islandi sést betm en nokkurstaðar
annarstaðar, að þessu þarf eigi að vera svo varið. Hið
islenzka orð »jarðeldar« bendir beinlinis til þess, að eldgos
geta eins brotist fram á láglendi einsog úr fjallatindum.
t’að sést hvergi eins vel einsog á íslandi, að eldgos koma úr
sprungum og gjám i jarðarskorpu. Þess eru mörg dæmi á
Islandi, að gosmekkir alt i einu risa upp á jafnsléttu. en
hraunleðja flóir út úr sprungum á báða vegu. ]?etta verður
á }’msan hátt, sjaldan spýr öll sprungan hrauni i einu,
oftast eru upprásirnar margar og af hrauni og gjalli
mynd-ast röð af smáum og stórum eldgigum, þar sem uppvörpin
eru. Nú vill það stundum verða, að aðalrásin er um eitt
op og hleðst þar upp há strvta, sem á endanum getur orðið
að háu eldfjalli, sem hækkar og stækkar við hvert gos.
Eitt slíkt uppvarp gýs þá stundum ár eftir ár, eða með
löngum hvíldum öld eftir öld, og getur orðið mörg þúsund
feta há strýta eða hryggur með hraunbreiðum alt i kring.
Paimig eru flest hin stóru eldfjöll til orðin. A íslandi má
sjá alla milliliði slíkra gosmyndana, frá örsmáum
eldsprung-um og gígaröðum upp i eldbrunnin 5—6 þúsund feta há
jökulfjöll, sem hafa verið að hlaðast upp og myndast i mörg
þúsund ár. Vér munum þvínæst lýsa hinum einstöku
teg-undum eldfjalla og eldvarpa, sem til eru á íslandi, eðli
þeirra og áhrifum.
Eldspruiig-ur og- gígaraðir. Jarðsprungur, stórar og
smáar, eru algengar um miðbik Islands, sem fyr var getið.
Landræmur hafa mjög oft sigið milli sprungna, svo á
flat-lendi koma fram aflangar dældir, takmarkaðar af beinum
gjám eða hamraveggjum; sumstaðar liafa landspildur sigið
mismikið, svo við það hafa myndast þrep og hjallar. Flestir
þekkja gjárnar við í’ingvelli, en urmull af gjám er viða
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>