- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
72

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

72 EldfjölL.

hraunröndinni komu einatt gúlar af glóandi hraunleðju,
sumir voru eigi stærri en manntakssteinar, en sumir einsog
stórir heybaggar. Pegar þessir gúlar höfðu rent sér
fram-undan hraunröndinni, kom strax á þá dökk skorpa, en aðrir
gúlar komu i kringum þá og svona smáþokaðist hraunið
áfram«.

Stærðin á gossprungunum er mjög mismunandi, sumar
eru margar milur á lengd, sumar aðeins fáir faðmar; á þeim
eru oft smáhlykkir og bugður og sumstaðar hverfa þær á
köflum og taka sig svo upp aftur. Allra syðst við
Sveina-gjárhraunin, er land ákaílega sprungið, þar fann eg 1884,
austan við Kerlingardyngju, ofurlitla gossprungu, sem var
aðeins 30—40 fet á lengd og 3—4 þumlungar á breidd, á
henni höfðu myndast 12 smágigir, að öllu eins lagaðir og
stórir gigir, en svo smáir, sem þeir væru ætlaðir til
leik-fangs fyrir börn; op flestra var aðeins 4—5 þuml. að
þver-máli, en op hins stærsta var tvö fet, frá gig þessuni höfðu
kastast hraunslettur 10 faðma á braut. A Reykjanesskaga
fann eg lika 1883, nálægt Helgafelli, örlitil eldvörp, hraunið
hafði þar runnið út úr smáholum, utan i litlu melbarði, og
fossað niður i smálækjum einsog uppsprettur, engir
eigin-legir gigir höfðu þó myndast, heldur hafði hraunleðjan
bein-linis ollið á nokkrum stöðum út úr sprungu á melbarðinu;
sprungan sést reyndar eigi. en opin eru i vanalega stefnu
frá suðvestri til norðausturs; kringum uppvörpin er dálítil
hrúga af hraunsteinum og svo hraunpipur niður úr;
hraun-bletturinn, sem komið hefur úr opum þessum, er mjög litill.
á að gizka 300 faðma langur og 10—20 faðma breiður.
Aftur eru aðrar gossprungur geysistórar, eru sumar opnar
og hefur hraunið ollið úr þeim á báða bóga, án þess
eigiu-legir gigir hafi myndast, stærst af öllum slikum sprungum
er Eldgjá, á Skaftártunguafrétti, hún er meira en fjórar
milur á lengd og hefir gosið ákaflega miklum hraunum,
sem taka yfir 12—13 ferh. milna fiatarmál; henni mun síðar
lýst. Sumar sprungur eru lokaðar, en á þeim standa raðir
af eldborgum; lengsta og stórkostlegasta eldborgaröðin á
íslandi eru Skaftárgigir á Siðumannaafrétti; eldvarparöð

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0084.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free