Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
90
Hi aun.
Kringum Surtshellir er helluhraun með nokkrum
hraun-blöðrum og sumstaðar hafa dálitlar ræmur sigið niður. Þar
sem gengið er niður í nyrðri enda hellisins er stór
ketil-mynduð gjá, er hraunið hefir fallið niður, og gengur
hellir-inn úr henni inn undir hraunskánina. Þakið er samsett úr
stuttum hraunsúlum og hefir mikið stórgrýti þar fallið niður,
svo urð er á botninum, viða slæm yfirferðar. Hellirinn hefir
auðsjáanlega verið hraunræsi, sem eldleðjan hefir runnið
eftir. þegar efsta skánin á aðalhrauninu var storknuð; sjást
á veggjunum enn þá för og rákir eftir hraunrenslið og
miðbik veggjanna er eins og gljáandi steypa með
smá-körtum og nöbbum, en hinn neðsti hluti þeirra er samsettur
af þunnum hraunlögum. Fremst í hellinum er nokkur
skima um stund frá innganginum og brátt fer að lýsa aftur
úr næsta niðurfalli1), sem er rúmum 50 föðmum sunnar, þar
hefir hellisloftið á 10—15 faðma svæði fallið niður, en
vegg-irnir við þetta op eru þó svo brattir, að hvorki er þar hægt
að komast upp né ofan; þar er sagt að Hellismenn haft
rekið féð niður, sem þeir stálu. Fyrir innan þetta op
kemur aðalhellirinn og er hann bæði viður og hár, 20—30
álnir undir loft. TJar er á miðjum veggnum hraunþrep og
hefir það liklega myndast svo. þegar hraunrenslið eftir
hell-inum var farið að minka, að nokkuð af 3’firborði seinasta
hraunflóðsins hefir storknað og orðið fast við veggina, á
stallinum eru margar hraunbylgjur, sem sýna, að þar hefir
einusinni verið yfirborð á hrauni. Ef gengið er eftir
stall-inum inn af opinu hægra megin, kemur afhellir, þar er
frosin tjörn í honum framan til, en innfrá er hrúga af
sauða-beinum, þar heitir Beinahellir. Nokkru innar i
aðal-hellinum, vinstra megin, eru tvö hellisop hátt uppi i
veggn-um og er ekki hægt að komast þar upp nema á einum stað.
þessi op sameinast fyrir innan hraunsúluna, sem er á milli
6W-602). í bók Zugmayers er flatarmála uppdráttur af Surtshellir,
telur hann hellirinn 1400 ín. eða 744 faðma á lengd, en hellirinn er í
raun og veru nokkuð lengri. Hvorki uppdráttur Zugmayers né heldur
uppdrátturinn í ferðabók Eggerts og Bjarna eru nákvæmir.
’) Pau eru kölluð gjár.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>