Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
94 Hi aun.
rauðum gjallhrúgum og svörtum hraunkötlum, sem
myncl-ast hafa af þessum smágosum. stundum tvístra nýir
hraun-straumar gígahrúgum þessum og bræða þær. Smáir
hraun-katlar, gleraðir að utan, bygðir úr þunnum hraunlögum og
hraunklessum, eru algengir kringum Lækjarbotna, nærri
Reykjavik, og fjöldi af gjallhrúgum og hraunkötlum eru viða
við Mývatn og i Laxárdal. Hjá Garði i Aðalrevkjadal er
fjöldi af slikum örsmáum gjallgígum, flestir þeirra eru aðeins
15—25 fet á hæð og nokkur hundruð álnir að ummáli við
rætur, hinir hæstu eru eigi nema 30—50 fet; hallinn fer
eftir stærð gjallsins og er vanalega um25°, stundum upp að
30°, þegar hraunkleprur eru innanum, stundum eigi nema 15—
20°. Hraunkatlarnir geta verið mjög brattir (40—50°). Sumir
aukagigir eru þú töluvert stærri en þessir. Hvergi á Islandi
er annar eins urmull af smágigum einsog á hinu forna
Eldgjárhrauni i Landbroti, hraunið, sem er hátt og nú viða
grasivaxið, er að ofan alsett hraunhólum, gjallkeilum og
gjallhrúgum; hólar þessir eru svo margir að varla verður
tölu á komið. og eru hrúgaðir saman án nokkurar reglu
eða raðar. Mikið graslendi og hagar eru i hólum þessum,
einkum i dældunum milli gjallhólanna; sumir hólarnir eru
holir að innan og víða eru hér hellar. Hraunið hefir
lik-lega. þegar það brann, á 10. öld, runnið yfir vatn eða fjörð1).
tegar Skaftárhraunin runnu nærri þessum hólum 1783,
stóðu víða reykjarmekkir uppúr þeim einsog úr
eldhús-strompum, þó hið rennandi hraun væri i allmiklum fjarska;
sýnir þetta, að holur miklar og undirgangar hljóta að vera
í hraunum þessum. A Leirhnúkshraunum mynduðust 1728
ýmsir aukagigir, en ný hraunrensli eyddu þeim flestum
aftur.
Til þess að lýsa almennu hraunrensli með
hraunkatla-myndun, set eg hér dálitinn kafla af frásögu um
Leirhnúks-gosið2) 18. des. 1728: »Hinn 18. des. tók á ný geysilega
’) Fvrir þessu hefi eg reynt að f’æra ýms ruk i Geografisk
Tids-skrift XII. 1894, bls. 218-219.
2) Síra Jón Sæmundsson, sem þá var prestur í Reykjahlíð, hefir
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>