- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
138

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

138

EldfjölL.

gos eru talin með, sem eðlilegt er, ættn Heklugosin öll,
síðan lancl bygðist, að vera 21 að tölu. Um fyrstu gosin
eru engar frásagnir, þau eru aðeins nefnd í annálum. Arið
1104 telja annálar hina fyrstu eldsuppkomu i Heklufjalli og
var veturinn eftir kallaður sandfallsvetur. Annað Heklugos
hófst 19. janúar 1157 og var þá landskjálfti sá, er
mann-dauði varð af. Priðja Heklugos varð 4. des. 1206 með
miklum dynkjum, vikurfalli og sandrigningu viða um sveitir,
þá gaus ennfremur 1222 og sól varð rauð að sjá, hefir þá
liklega verið mikið mistur i lofti. Hið 5. Heklugos, 1294,
var mikið gos, þá er sagt að hafi mátt ganga þurrum fótum
yfir Rangá af vikurfalli, og þar sem afkastaði strauminum í
Pjórsá, var svo þykkur vikurinn að fal ána. svartir
vikur-fiakar voru á sjónum milli Færeyja og Islands. Pá urðu
miklir landskjálftar um alt Suðurlandsundirlendi, einkum þó
á Rangárvöllum, hús féllu og jörð sprakk viða, en hverir
breyttust; þá komu upp hverar stórir i Eyjafjalli hjá
Hauk-adal, en sumir hurfu, þeir sem áður voru. Fáum árum eftir
gaus Hekla aftur með miklum ofsa, 10. júli, árið 1300.
Pá er þess getið. að fjallið hafi rifnað »svá at sjáz mun
mega meðan Island er bygt«, má vera að þá hafi myndast
gigasprungan stóra eftir hrygg fjallsins. Brestirnir heyrðust
norður um land og vindur af landsuðri bar sand norður
með svo miklu myrkri. að engi maður mátti greina nótt frá
degi og i tvo daga þorðu menn ekki að róa fyrir myrkri,
öll jörð milli Yatnsskarðs og Axarfjarðarheiðar var þakin
sandi, svo tók fyrir slátt. Hinn 6 dag jóla gerði
land-skjálfta mikla fyrir austan ár; þessi Heklueldur var uppi i
12 mánuði og á eftir varð hallæri mikið og fjárfellir. 1341
kom eldur upp i Heklufjalli, 19. mai, með svo miklum
fá-dæmum af öskufalli að eyddi margar sveitir þar í nánd.
dunurnar hej’rðust um alt land og i fjarlægum héruðum
hristust skjáir á húsum um langan tíma og var þá kyrt
veður. Undir Eyjafjöllum tók askan í ökla, féll þá og aska
um Borgarfjörð og Skaga, og fénaður féll hvervetna þar á
milli. Sandfallið var þó mest um Rangárvelli, og er sagt,
að gosið liafi eytt 5 hreppa; einsog fyr hefir verið getið,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0150.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free