Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
140
EldfjölL.
Hjaltlandseyja, margar jarðir lögðust þá um tima i eyði á
Landi, i Hreppum ofarlega og i Tungum og fénaður sýktist
víða af gaddi. 1728 og 1754 urðu menn varir við
litils-háttar eldsuppkomar i Hekluhraunum. Arið 1766 var
Heklu-gos, er byrjaði 5. april. Gosbyrjunin var mjög áköf,
vikur-steinar, þrjár álnir að ummáli, köstuðust 2 mílur frá
fjall-inu; hjá Næfurholti féll 71/2 punds þungur steinn svo djúpt
i freðna jörð, að það varð að ná honum upp með járnkarli,
5 bæir i Rangárvallasýslu fóru í eyði og sumir skemdust i
r
Arnessýslu; árnar báru ógrynni af vikri til hafs, svo skip
mættu stórum flotum langt úti á sjó. Oskuna lagði i fyrstu
norður yfir land og varð svo dimt á Norðurlandi, að ekki
sá á hönd sér á Þingeyrum eða i Glaumbæ, hagar og
slægjur spiltust, svo fjárfellir varð i Skagafjarðar- og
Húna-vatnssýslum. Yikurgosið hélzt með ákafa i 4 daga og sáust
stundum 18 eldar i einu úr fjallinu, en hinn 9. april brauzt
fram hraun úr gigi suðvestan i Heklu og rann það til
suð-urs og stefndi á Geldingafjöll. Allan mánuðinn hélt Hekla
áfram gosum og hinn 21. april var hæð öskumökksins mæld
og var 16000 fet; gosin urðu eftir það kraftminni, en
héld-ust þó alt sumarið og fram á haust. Eftir gosið kom
fjár-fellir og hallæri. Seinasta gos úr Heklu sjálfri byrjaði 2.
september 1845, kl. 10 um morguninn, og heyrðust dynkir
i jörðu um alt land, jafnvel norður i Grimsey. Vindur bar
öskumökkinn til suðausturs, svo askan féll mest yfir
Skaft-ártungu og Síðu, öskudust barst og til Shetlands- og
Orkn-eyja. Um kvöldið 2. sept. kl. 71/2 fór hraun að renna niður
vesturhliðar fjallsins og héldust gosin siðan með
smáhvíld-um marga mánuði; hraunið komst niður að Næfurholti og
varð V/2 mila á lengd, en 3/s milu á breidd, þar sem það
var breiðast; hryggur Heklu rifnaði og á sprungunni
mynd-uðust 5 gígir. Gosið stóð i 7 mánuði, en gjörði þó
tiltölu-lega litinn skaða, {)ó fénaður sýktist nokkuð sumstaðar og
slægjur á útengjum yrðu litlar i öskusveitunum Hinn 27.
febrúar 1878 kom eldur upp i hraunum, norðaustur af Heklu,
við Krakatind, gengu þá jarðskjálftakippir víðsvegar um
Suðurlandsundirlendi A sprungu vestan við Rauðfossafjöll
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>