- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
162

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

162

EldfjölL.

mjög; Djúpá brauzt fram og skemdi engi á Kálfafelli, vatn

árinnar óx um 200 fet og graslendi skemdust mjög af grjóti,

f *.

sandi, og jökum. Ur Oræfum sást sífeldur eldgangur og
eldingar og íbúar þar heyrðu stóra jöklabresti og brak.
Yindurinn var á norðaustan og flutti ösku og vikur vestur
yfir Skaftártungu, svo jarðbönn urðu og nokkur peningur
féll1). Grimsvatna er fyrst getið 1598, þá gaus þar 10.
nóvember og sást eldurinn hérumbil 8 daga viða um land,
öskufallið var fjær og nær til allmikils skaða og náði
jafn-vel norður i Eyjafjörð2). 1681 er sagt að Skeiðarárjökull
hafi gosið og 1685 var eldur uppi við Grimsvötn. Þar sem
gos eru nefnd i Skeiðarárjökli, er sennilega átt við hlaup
jökulsins og samfara gos nærri Hágöngum. 1716 var eldur
uppi i Grimsvötnum og sást hann úr Skagafirði, 1725 og
1727 var eldur uppi á sama stað og hlaup mikil úr
Skeiðar-árjökli. Arið 1774 sást allan vetur, helzt um föstutima,
eldur mikill uppi fyrir austan, þá hljóp Skeiðarárjökull og
fór hlaupið mest niður farveg Súlu, en Skeiðará var þur
í 17 vikur, en reykjarmökkurinn sást i 5 vikur og 3
daga. Eldur þessi sást viða um land, úr Reykjavik,
Húnavatnssýslu, Skagafirði og Mývatnssveit. Askan féll
i óbygðir, svo engar skemdir urðu. Skeiðarárjökull
hljóp 1784, 8. april, með miklurn eldgangi og var
hlaup-ið þá lika mest niður Súlu og Núpsvötn; ennfremur
er sagt að Skeiðarárjökull hafi hlaupið 1787. A 19. öld
gaus oft á sama stað og Skeiðarárjökull hljóp þá lika. I
febrúarmánuði 1823 sást reykjarmökkur i jöklinum, norður
af Lómagnúp, liklega á hinum vanalega gosstað, aska féll í
nálægum héruðum, en ekki mikil; sama ár gaus Katla. Yér
höfum áður getið ellefu hlaupa úr Skeiðarárjökli á 19. öld og
eins á hlaups 20. öld, mörgum þeirra voru samfara gos á liinum
.vanalega gosstað eða þá annarstaðar í Yatnajökli, og hefir
sumra þeirra einnig verið fyr getið. Um gosið 1883 er
efasamt, hvort það hefir verið hjá Hágöngum eða annar-

») Ferðabók Eggerts Ólafssonar II, bls. 775—776.

’•*) Bréf l’rá Olafi Einarssyni til Þórðar Björnssonar. Ny kgl.
Sam-ling, Nr. 271 - 8°-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0174.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free