Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Ódáðahraun.
167
Herðubreið nær hraunröndin aftur austur að á, en dregst
svo jafnan meir og meir suðvestur, alt að Kistufelli; fyrir
sunnan það og austan eru vikursandar og leirur, en liklega
er þar hraun viða undir, hraundrangar koma þar
sum-staðar fram úr sandinum, t. d. við upptök Svartár hjá
Vaðöldu.
Odáðahraun er mestalt stórgjört helluhraun, apalhraun
eru aðeins á köfium og taka sjaldan yfir stór svæði. Viða
er í hrauninu roksandur allmikill, en gróðrarsnautt má hraunið
heita, meltottar sjást á stöku stað og haganælingur hér og
hvar á útjöðrum, en i syðstu og hæstu hlutum hraunsins
sést ekki stingandi strá. Vatnslaust er þar lika, alt vatn
sigur i hraunin, en ótal uppsprettur koma fram undan
út-jöðrum hraunsins og sameinast þær alloft og verða að
vatns-miklum ám. Hraun þau, sem i þessum héruðum hafa ollið
upp um ótal gjár og eldvörp eru svo mikil að rúmtaki,
að þau myndu hafa fylt allan Faxaflóa, hefðu þau runnið
út i hann.
Landslagi á þessu svæði hefir áður verið ljst og þau
móbergsfjöll og hálsahryggir verið taldir, sem standa upp úr
hinu mikla hraunhafi. Odáðahraun hefir komið úr óteljandi
eldvörpum, og líklega eru mörg horfin og hulin undir
hraun-um. Það er ekki gott að segja, hve mörg eldfjöll þar eru,
þvi hin vanalega eldfjallshugmynd á sjaldnast við, þvi gosin
hafa oft aðeins myndað litlar gigaraðir eða gjallboi’gahrúgur.
Ef eldvörp á þessu svæði eru flokkuð saman, má telja að
hér séu hérumbil 23 eldfjöll af vmsu tagi. Meginhluti þeirra
hefir eflaust gosið áður en land bygðist, en sum gos hafa
þó líklega orðið á söguöldinni, þó það sé ekki í frásögur
fært.
Úr norðurendanum á Tungnafellsjökli hefir hraun runnið
austan við Jökulfell niður að Skjálfandafljóti, beint á móti
Stóra Flæðuhnúk, hraun þetta er enn ókannað og eigi vita
Skýring 87. mj-ndar bls. 166.
1. Þverskurður frá norðri til suðurs, frá Mývatni að Vatnajökli. 2.
Pverskurður frá vestri til austurs, frá Bárðardal til Jökulsár. 3.
fver-skurður frá Skjálfandafljóti við Tungnafeilsjökul austur í Hvannalindir.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>