- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
179

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Mývatnskraun.

179

og leirhverirnir eru austan við fjallið. Af hinum mörgu
gigum, sem eru vestan við Námufjall, er Hverfjall (1536’)
hinn lang stærsti, það er afarmikill bolli, nærri hálf mila að
ummáli; fjall þetta er alt bygt úr hraunsandi og
hraunmol-um, með hraunbjörgum stórum hér og hvar saman við; að
innan ganga smágil og rásir niður i botn, og hafa þau
myndast af vatnsrensli og grjóthruni; rönd fjallsins er lægst
að vestan og viða geilar i. A botni skálarinnar er sandslétta
með stórgjörðum svörtum gjallsandi; á miðri sléttunni er
melhóll, um 50 fet á hæð, tengist hann við suðurhliðina af

F. Zirkel.

95. mynd. Hveríjall við Mývatn.
Mývatn næst, Námufjall bak við Hverfjall.

dálitlum melhrygg. Hverfjall hallast um 20° að utan og
15—20° að innan; norður af því vottar fyrir stórum gjám
og ein þeirra gengur alveg upp í Dalfjall og endar með
stórri klauf við Námuskarð.

Nærri Námufjalli, fyrir sunnan þjóðleiðina yfir
Námu-skarð, eru Jarðbaðshólar, gamlir og stórir gigir, úr þeim
hafa að öllum likindum komið hin gömlu hraun milli
Geit-eyjarstrandar og Reykjahliðar. I gigum þessum er enn
töluverður jarðhiti og heitar gufur koma þar úr rifum og
holum, þar er hið svokallaða xþurrabað«, það var mjög frægt
á fyrri timum og átti Guðmundur biskup Arason að liafa

12*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0191.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free